Eftir frábærann sigur í síðasta leik komum við fullir sjálfstraust inn í næsta leik. Næsti leikur er gegn Brostnum Draumum sem þið kannski munið að við mættum í Bikarkeppninni og munum við leita hefnda. Jafnframt má nefna það að þetta er næstsíðasti leikur FC Bumbi í sumardeildinni …Lesa meira! »
FC Bumbi tók á móti fc gretti á leiknisvellinum á fallegu þriðjudagskvöldi. Áhorfendur höfðu komið sér vel fyrir til að búa sig undir ótrúlega veislu. Bumbi byrjaði gríðalega sterkir og eftir að hafa pressað mikið á vörnina í byrjun leiks kom að því að markmaður grettis myndi brotna og þá var Fritzzzl ekki lengi að stela boltanum af vörninni og þruma á markið.
FC Bumbi átti leik við engann annan en Prins Hárfagra Valíant sem var útlægur prins frá bænum Thúle og ákvað að kíkja uppá Leiknisvöll og taka einn leik við Bumbann. Þegar búið var að koma upp myndavél og netsnúru sem er á við 69 limalengdir Bumbaleikmanna gat leikurinn hafist. …Lesa meira! »
Eftir 2. leikja taphrinu er komið að bumbanum að leika við Dynamo Iceland og ætlunin er að sýna þessum pappakössum hvar bumbi kaupir ölið (yfirleitt vínbúð eða bar og þá yfirleitt frá ölvisholti).
Leikurinn fer fram á leiknisvelli þann 13.júní kl 20:00 sem er sunnudagur og eins og allir vita er bumbi einmitt bestur í fótbolta á sunnudögum
sökum mikillar ölvunar um helgar. …Lesa meira! »
FC Bumbi tók á FC Gettó í baráttunni um Breiðholtið. Þar sem undirritaður var ekki á staðnum og alltof ölvaður til að horfa á leikinn í beinni útsendingu hefur sú ákvörðun verið tekin eftir að hafa ráðfært mig við engan, að þessi umfjöllun fjalli um leikinn eins og hann ætti að hafa endað. …Lesa meira! »
Nú erum við búnir að æfa og spila í Gettóinu í tæpt ár en það er núna fyrst sem við munum spila við heimamenn. Enn sem komið er höfum við unnið einn og tapað einum í deildinni sem er sama byrjun og í Vetrardeildinni. Þó held ég að okkur muni ganga betur í sumardeildinni, ég vil taka það fram að það hefur ekkert að gera með það að Formaður vor mun spila mjög fáa jafnvel engann leik í sumar. …Lesa meira! »
Æfingatími er 19:00 - 21:00 á mánudögum á Leiknisvelli. Klukkan 21:00 færist æfingin yfir á Nikkabar þar sem bjórdrykkja er þjálfuð!
Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ
Norsarinn: Áfengi er klárlega betra en áfangi… en saman var þetta fáranlega góð blanda. Djöfull var næs að við...