FC Bumbi er rúmlega 20 manna fótboltalið sem tekur þátt í utandeild Leiknis. Liðið kom fyrst saman sumarið 2009 en var formlega skráð hjá skattstjóra í október sama ár.
Rekstur félagsins hefur hingað til allur verið í höndum félagsmanna í formi árgjalds. Er þetta nokkuð þungur baggi á liðsmönnum því kostnaður getur fljótt þotið upp. Kostnaðarliðirnir hafa verið fyrir leigu á æfingaplássi, þátttaka í deildinni, búningakaup, áhaldakaup, önnur mót og fleira tilfallandi.
Því hefur verið ákveðið að leita til utanaðkomandi aðila um styrki og bjóða þess í stað auglýsingapláss, bæði á búning og á hinni sívinsælu heimasíðu okkar fcbumbi.com
Það hefur verið stefna hjá félaginu að vekja eins mikla athygli á okkur og kostur er og því ætti auglýsing hjá FC Bumbi að vera meira en bara styrkur, heldur líka fýsilegur fjárfestingarkostur. FC Bumbi leggur áherslu á gott samstarf við styrktaraðila sína og vill allt gera til að veita þeim eins mikla athygli og félagið hefur möguleika á.
FC Bumbi heldur úti vefsíðunni www.fcbumbi.com, heimasíðan er sífellt uppfærð og fjallað er um allt sem við kemur félaginu. Einnig heldur félagið úti aðdáendasíðu á facebook með rúmlega 2500 aðdáendur, vinsælasta íslenska íþróttafélag á facebook. En til samanburðar hefur Knattspyrnufélag Reykjavíkur 1306 aðdáendur og Fimleikafélag Hafnarfjarðar 2246.
Hér á heimasíðu okkar er að finna 6 tegundir af bannerum, þar af 4 sem fylgja á allar undirsíður og 2 sem eru staðsettir á fréttaveitu okkar á forsíðu. Þar sem við hugsum auglýsingar hjá okkur meira sem styrki en viðskipti eru verð á bannerum ekki heilög. Hægt er að sjá viðmiðunarverð í töflu hægra megin á síðunni.
Auglýsingapláss á búning eru á maga, mjóbaki, ermum og rassi.
Búningur okkar er ljósbleikur og limegrænn og voru þeir litir valdir svo sem mest bæri á okkur í samanburði við önnur lið ásamt því að kitla hláturtaugar.
Hvert sem við förum vekur búningur okkar eðlilega gífurlega athygli og hefur unnið til fjölda búningaverðlauna.
FC Bumbi tekur við styrkjum af öllum stærðum og gerðum og er það okkar markmið að báðir aðilar geti notið góðs af.
Vatnsmerki á myndir er mjög góð og einföld ayglýsingaleið og myndum við setja lógó inn á allar okkar myndir sem birtast hér á heimasíðunni og facebook
Styrkjaumsjón FC Bumba er í höndum
Bragi Brynjarsson
S: 777-6054
Netfang: bragi.brynjarsson@efla.is
Birkir Brynjarsson
S: 772-7773
Netfang: birkir@birkir.is
Einnig er hægt að senda e-mail á: fcbumbi@fcbumbi.com
Sækja FC Bumbi - Styrkja-leaflet í PDF
| Svæði | Viðmiðunar-stærð | Verðhugmynd/per 2 mán |
| 1 | 150x70px | 7.500,- |
| 2 | 540x80px | 10.000,- |
| 3 | 540x80px | 10.000,- |
| 4 | 190x80px | 5.000,- |
| 5 | 190x80px | 5.000,- |
| 6 | 150x600px | 15.000,- |