Faðir Vor á afmæli!
Kæru Félagar og Áhangendur
Já það er satt Guð á afmæli í dag og ég las það ekki í Biblíunni enda þykir mér ólíklegt að skáldsagnahöfundar fyrri tíma hafi gert sér í hugaland að slíkur knattspyrnumaður skildi líta dagsins ljós. Þó eru Guð bilblíunar og Faðir Vor líkir á þann hátt að vera nokk umdeildir á sínu sviði. Umræddur einstaklingur er mun hærri en Lionel Messi og líklega var hann þeim mun betri líka.
Auðvita er ég að tala um meistara Robbie Fowler sem í dag er 35 ára gamall. Sem stendur spilar hann fyrir North Queensland Fury í Áströlsku deildinni. Þó er hann þekktastur fyrir leik sinn hjá Liverpool FC þar sem hann kom ásamt fleirum góðum upp úr frábæru ungliðastarfi liðsins. Eins og ég sagði hér á undan byrjaði Fowler í ungliðastarfi Liverpool og skrifaði síðan undir samning við liðið aðeins 17 ára gamall. Þar lék hann í 9 ár eða til ársins 2001. 
Á þessum árum skoraði hann heilan helling af mörkum eða 120 talsins í 236 leikjum. Tímabilið ’94-’95 spilaði hann í öllum leikjum liðsins sem og að hann skoraði þrennu gegn Arsenal á 4mín 33sek sem er met í úrvalsdeildinni. Eins má ekki gleyma 4-3 sigri liðsins gegn Newcastle Utd tímabilið ’95-’96 sem var kosinn leikur áratugarinns en þar skoraði Fowler tvö mörk.
Að lokinni veru sinni hjá Liverpool fór hann til Leeds sem þá var með betri liðum í Úrvalsdeildinni. Spilaði Fowler fyrir Leeds 30 leiki og skoraði í þeim 14 mörk áður en hann fluttist til Manchester borgar þar sem hann splaði fyrir City. Eftir að hafa spilað fyrir City í 3 ár fékk Fowler drauma tilboð en Liverpool bauð honum samning sem hann að sjálfsögðu skrifaði undir. Sjaldan hefur jafn mikið verið fangnað og þegar Guð gekk að hliðarlínunni á Anfield til þess að koma inná fyrir Peter Crouch gegn Burmingham City.
Fowler mun seint vera kallaður kórdrengur en hann hefur verið mjög umdeildur jafn innan sem utan vallar. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan þar sem hann þóttist taka hvítu kalk línuna í nefnið eftir að sögusagnir þess efnis að hann væri í eiturlífum fóru manna á milli. Fowler ásamt Jamie Redknapp, Stan Collymore, David James og Steve McManaman voru kallaðir Spice Boy’s í fréttum þegar fréttamönnum þótti þeir vera lélegir inná velli og glaumgosar utan hans.
Fowler hefur vegnað vel í lífinu ekki bara í fótbolta heldur einnig í viðskiptalífinu en hann er sagður vera lúnkinn viðskiptamaður sem og hann var á lista yfir 1.000 ríkustu Breta í heim skv. Sunday Times. En hann hefur grætt á viðskiptum með veðhlaupa hesta sem og fasteignaviðskipti.
A goal is a goal no matter which end it goes in. I`m pleased to get off the mark again.
Robbie Fowler
Yfir og Út
Føroyingurin


10 apr, 2010 klukkan 11:18
Við óskum honum til hamingju
10 apr, 2010 klukkan 11:56
Snillingur
10 apr, 2010 klukkan 15:57
Hvaðan kom hann, hvert er hann að fara, HVAÐ er hann….. Robbie Fucking Fowler!
12 apr, 2010 klukkan 14:07
Snillingur þarna á ferð