könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

Flying Ace

Sælir Félagar og Áhangendur

Löng hefur biðin verið en það er komið að afmælis pistli og biðin er ekki til einskins því um er að ræða fyrrverandi Scunthorpe, Liverpool og Tottenham mann. Raymond Neal Clemence eða betur þekktur sem Ray Clemence en hann er ekki nema 62 ára í dag og því gjaldgengur í FC Bumbi. Fyrir þá sem ekki muna eftir þessum snillingi þá er hann talinn vera einn sá ef ekki sá besti markmaður sem England hefur gefið af sér.

Hann hóf ferilinn með ekki verra liði en Scunthorpe United en þó svo verið sé að gera grín að því liði í auglýsingum Nova hér á landi þá hafa margir góðir knattspyrnumenn byrjað feril sinn þar, auk Ray byrjaði Kevin Keegan sinn feril hjá Scunthorpe. Ray spilaði þó aðeins í eitt ár með Scunthorpe eða þar til Bill Shankly keypti hann til stórveldisins Liverpool FC.

Eftir strangar æfingar í eitt ár hjá Liverpool fékk hann loks tækifæri hjá aðalliðinu í deildarbikarnum þar sem hann hélt hreinu. Þrátt fyrir ágæti takta varð hann ekki aðalmarkmaður liðsins fyrr en tveimur árum síðar eða árið 1970. Ray spilaði með Liverpool allt til ársins 1981 og vann með þeim heilan helling af verðlaunum þar má nefna fimm sinnum deildarmeistari og þrisvar sinnum Meistaradeildina. Með Liverpool spilaði hann hann 665 leiki af þeim hélt hann markinu hreinu í 335 leikjum. Ray setti met tímabilið ’78-’79 þegar hann fékk aðeins á sig 16 mörk í 42 deildarleikjum þar af 4 mörk á Anfield.

Eftir skemmtileg ár hjá Liverpool hélt hann til Tottenham og spilaði hann þar allt til ársins 1988 eða þar til hann lagði skóna á hilluna. Með Tottenham vann hann meðal annars Evrópubikarinn sem og FA Bikarinn og spilaði hann 240 leiki með þeim á þessum 7 árum.

Ray spilaði með enska landsliðinu frá ’72-’84 en þrátt fyrir að hafa spilað í heil 12 ár spilaði hann aðeins 61 leik en svo óhepplega vildi til fyrir England að þeirra bestu markmenn allra tíma skildu vera spilandi á sama tíma. Sá sem ég tala um er auðvita Peter Shilton fyrir þá sem ekki vita hver það er þá er hann markmaðurinn sem Diego Armando Maradona skorði gegn með “Hendi Guðs”.

Í dag heldur Ray sig mest til hlés en hann var markmannsþjálfari enska landsliðsins frá ’96-’07 eða þar til Capello tók við. Það er helst að maður sjái hann lýsa leikjum hjá BBC

Yfir og Út
Føroyingurin

2 Ummæli

  1. Snilld!

  2. Thumbs Up!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook