FC Bumbi vs llama

miðvikudagur, 12. janúar, 2011

Fyrst gerðist þetta (meira …)

Fréttir | 4 Ummæli »

FC Bumbi vs fc ghettó

þriðjudagur, 11. janúar, 2011

Einu sinni voru litlir piltar sem áttu það til að sprella mikið. Ölkrúsir og almenn skemmtileg heit voru daglegt brauð enda þekktu þeir aðal Álfinn í hverfinu, átti hann til að lauma á þá bjórsopa við og við fyrir kannski einn Brynjólf. Þess vegna þekktu þeir vel timburmennina sem kíktu á þá reglulega. En einn góðan veðurdag þegar piltarnir voru í boltaleik uppí Breiðholti brá þeim heldur betur í brún þegar (meira …)

Fréttir | 3 Ummæli »

Bikarúrslitaleikur Carlsbergdeildarinnar

sunnudagur, 15. ágúst, 2010

Kæru Félagar og áhangendur
carlsberg
Við hjá FC Bumbi höfum ákveðið að senda bikarúrslitaleikinn í Carlsbergdeildinnni árið 2010 og leika til sigurs liðin KF Frómas og Hómer.

Leikurinn hefst stundvíslega kl 19:00 15. ágúst og verður hann sýnur á Live síðu okkar hér

Vonumst við til að sjá sem flesta

Kveðja FC Bumbi

Fréttir | 1 Ummæli »

Fc Bumbi vs Grettir

föstudagur, 23. júlí, 2010

FC Bumbi tók á móti fc gretti á leiknisvellinum á fallegu þriðjudagskvöldi. Áhorfendur höfðu komið sér vel fyrir til að búa sig undir ótrúlega veislu. Bumbi byrjaði gríðalega sterkir og eftir að hafa pressað mikið á vörnina í byrjun leiks kom að því að markmaður grettis myndi brotna og þá var Fritzzzl ekki lengi að stela boltanum af vörninni og þruma á markið.

FC Bumbi kominn yfir (meira …)

Fréttir, Leikir | 5 Ummæli »

Bandýmót á Ólafsfirði

mánudagur, 17. maí, 2010

Klukkan er 23:30, Ljónsungar liggja í valnum og Bumbi heldur af stað á bandímót…

Bandý

Svona byrjar líklega skemmtilegasta ferðalag í manna minnum. Þegar komið var út fyrir borgarmörk vorum við bara búnir að lenda í 1 árekstri og því ljóst að happadísirnar voru með í för. Keyrt var alla nótt norður á leið og fylgdum við næturlæðunni nákvæmlega svo ekki náði myrkrið að svæfa okkur.
Þegar komið var að Baulu var auðséð að fylla þurfti á bjórbirgðir úr skottinu. En þegar seinni bíllinn rann í hlað voru farþegar fyrsta bílsins búnir að fjarlæga allar flíkur af líkömum sínum og réðust í átt að grunlausum félögum sínum í seinni bílnum. Þótti þetta svo stórgóð hugmynd að fórum við allir úr fötunum og streakað var framhjá bensínstöðinni og hennar öryggismyndavélum í átt að þjóðveginum. Myndir voru teknar af þessum fríða flokk sem senda átti áfram á Guðbjörn, bandímótsstjóra og segja honum að við værum lagðir af stað.

(meira …)

Fréttir | 5 Ummæli »

Leikurinn sýndur í beinni!

föstudagur, 7. maí, 2010

Mikið rétt

Leikur FC Bumbi og Ljónsunganna er sýndur hér í beinni útsendingu hér: Í beinni. Lýsir leiksins er að þessu sinni Bjartu Guðjónson, einnig þekktur sem Beatur.

Fyrsta skipti í sögu Carlsbergdeildar sem lið sýna frá leikjum sínum live! Eitt stutt skref fyrir Bumba en stærðartökk fyrir knattspyrnuheiminn.

Endilega horfðu á leikinn og láttu fara vel um þig heima hjá þér!

kv. Fabio
Formaður

Fréttir | Engin Ummæli »