Sumarið er komið….

miðvikudagur, 14. apríl, 2010

Kæru jafningar og hinir…

Á Formannsfund Carlsbergdeildar mættu bæði formaður og framkvæmdarstýra Bumbans. Lesblindi framkvæmdarstjórinn var strax valinn úr fríðum hópi til að draga í riðla og gerði með stakri prýði, séstaklega þar sem hann fann Ljónsungana og setti í okkar riðil. Ástæða þess að við viljum fá þessa menn í okkar riðil er sú að enginn annar en Dr.Krizz eða Stína eins og við þekkjum kauða, mun yfirgefa Bumbann og ganga til liðs við ungviði Múfasa. Það er alveg öruggt að Ljónsungar muni eflast gífurlega enda hefur Stínu farið mikið fram undir leiðsögn Bumbans. Það er þó með þungu hjarta sem við kveðjum drenginn en erum þó vissir að við höfum ekki séð hann í bleiku og grænu dýrðinni í seinasta sinn. Mun þetta verða opnunarleikur mótsins og því ekki úr vegi að byrja sterkt, 3 stig í hús og við sýnum af hverju konungur ljónanna er í Bumba!

Riðill okkar hljómar svona:

Liðin:

FC Grettir kom sá og skíttapaði í vító fyrir ekki löngu

Dynamó Iceland varð Bumba engin fyrirstaða í vetur

Prins Valíant afmeyjaði Bumba í vetrardeildinni í fyrsta leik og verður því mikil gleði að hefna fyrir þær ófarir, skemmtilegir drengir engu að síður!

KF Adriano mættum við á Kjarnamóti þar sem þeir unnu 4-2, misnotu 17 vítaspyrnur og Bumbi var fullur

Önnur lið hafa ekki orðið á vegi Bumba en nokkur eru þó þekkt. Til að mynda eiga Brostnir draumar lang versta stuðningsmannalag í sögu íþrótta, meira að segja Bumbi væri stoltur af þessu. Þeir tefla iðulega fram ólöglegum eða ljótum leikmönnum…

Hvatberar eiga margt sameiginlegt með hinni stórmerkilegu Tonya Maxine Harding og þá einna helst að ráðast á sterkustu mótherja sína og gera þá ókeppnishæfa. Lið Bootcamp, sem er sigursælasta lið Carlsberg keppninnar dróg sig úr keppni eftir að Hvatberar fótbrutu þeirra besta mann í æfingaleik á dögunum. Enginn skal þó örvænta því Bumbi hefur látið rétt yfirvöld vita og þau sent sína bestu menn okkur til verndar.

FC Gettó eru væntanlega stórhættulegir rapparar sem koma þrælvopnaðir til leiks.

Þetta er nokkuð erfiður riðill að mínu mati en það er bara skemmtilegra!

Bikarkeppnin:

FC Bumbi keppir í fyrstu umferð bikars við Brostna Drauma. Er þar stórhættulegt lið á ferð sem þjálfað er af Hannesi Þór markmannsskvísu Fram. Liðið er að ég held skipað geldollum úr verlzó, árgerð ca.’84-85 og verður erfiður mótherji þar sem mig grunar að þeir viti að fótbolti sé kringlóttur og að markmaður eigi að vera með hanska. Við mætum auðvitað dýrvitlausir með bjór undir belti og söltum þessa drengi en meira um þennan leik seinna.

Yfir og framhjá
Fabio, Formaður

Fréttir | 6 Ummæli »

Gos í Eyjafjallajökli

sunnudagur, 21. mars, 2010

Gos í Eyjafjallajökli

Nú rétt í þessu hófst gos í Eyjafjallajökli og var útsendari FC Bumbi að sjálfsögðu strax kominn á staðinn og fyrstur með myndirnar… Fylgstu með…

FC Bumbi…. “Fyrstir með fréttirnar!”

Fréttir | 3 Ummæli »

Magni-ficent heiðursfélagi

fimmtudagur, 18. mars, 2010

Nú er komið að því að svipta hulunni af nýjasta heiðursmeðlim FC Bumba. Mun það vera hinn kyngimagnaði Magni.

Magni hefur snert hjörtu og prívat svæði flestra landsmanna oftar en einu sinni á þeim fjölmörgu skólaböllum og tónleikum sem drengurinn hefur leitt með stórsveit sinni Á móti sól. Utan landsteinanna er hann best þekktur fyrir að kenna gömlum rokk hundum Hollywood hvernig íslenskir sveitadurgar munda gítar og mic. Kraftur og kynþokki Austanmannsins fór sem eldur í sinu þvert í gegnum Bandaríkin og fær hann enn þann dag í dag sendar nærbuxur heimavinnandi húsmæðra frá Kansas ásamt ástarbréfum úr fangelsum.

(meira …)

Fréttir | 3 Ummæli »

Lyklakippur FC Bumba

mánudagur, 15. mars, 2010

Herrar mínir og dömur!

Lyklakippa

Hér hefur FC Bumbi til sölu þessar gullfallegu lyklakippur með merki FC Bumba. Er einungis settar skitnar 1500kr á þessa stórkostlegu smíði og er það augljóslega gjöf en ekki gjald!

Til að panta svona dýrgrip skal senda e-mail á fcbumbi@fcbumbi.com . ATH! Aðeins 20 stykki eru til og því borgar sig að vera fljótur…

Ekki láta þetta tækifæri renna þér úr greipum!

Allur ágóði rennur til félagsins og verður notaður til að efla starfssemi þess. Þessi gripur er án efa tilvalinn í allskyns gjafir, hvort sem það er afmæli eða skírn þá hafa allir gott af því að eignast FC Bumbi lyklakippu. Styðjum góðan málstað og kaupum lyklakippu!

Fleiri vörur eru væntanlegar og eru þær allar hverri eigulegri. Hvort sem þú ert liðsmaður eða aðdáandi er öruggt að þú vekur eftirtekt með þennan dýrgrip dinglandi við lykla þína.

Heillaðu dömurnar upp úr skónum með þessu djásni, á aðeins 1500kr!

Kv. Fabio
Formaður

Fréttir | 5 Ummæli »

Sumarliði… í bandí?

mánudagur, 15. mars, 2010

Sælir drengir

Ég var að klára daglegu nætur-þrekþjálfunina og ákvað að skella einum pósti upp í leiðinni.

Hér á síðunni var borin upp spurningin: “Ertu spenntur fyrir sumardeildinni?”

Svörin voru eftirfarandi: Já 88% (28) Nei 12% (4)
(meira …)

Fréttir | 7 Ummæli »

Æfingaleikur FC Bumbi vs. FC Pump

þriðjudagur, 9. mars, 2010

Æfingarleikur milli FC Bumbi og FC Pump fór fram á æfingartíma okkar á Leiknisvellinum. Var tekinn rosaleg upphitun þrátt fyrir lélega mætingu þar sem leyndir hæfileikar hjá Fabio komu bersýnilega í ljós. Markmaður okkar Alkinho nennti engann veginn að standa í því að hanga í markinu fyrst þetta var bara æfingarleikur og hleypti því öðrum í markið.

Leikurinn byrjaði að krafti en eftir það féll ritari þessarar greinar í dá og vaknaði ekki fyrr en hávært og gott HÓKÝ PÓKÝ ómaði um allt breiðholtið (meira …)

Fréttir | 2 Ummæli »