Þríþraut FC Bumbi #5

miðvikudagur, 10. febrúar, 2010

Sælir Félagar og Áhangendur

Þá er komið að nýrri þríþraut eftir smá hlé, það er vonandi að allir komi endurnærðir til leiks og sjái sér fært að svara þessu þó svo þið séuð ekki með allt rétt. Þetta á bara að vera gaman og finnst mér að fólk eigi að sýna lit með því að senda inn sín svör þó svo þau séu bara skot út í loftið. (meira …)

Getraunir | Engin Ummæli »

Þríþraut #4 Svör

föstudagur, 22. janúar, 2010

Kæru Félagar og Áhangendur

Eitthvað eru þessar þríþrautir að verða daprar ef eitthvað er að marka þann fjölda sem sendir inn svör. En það þýðir samt ekki að hætta heldur að halda bara ótrauðir áfram og á endanum verður allt vinsælt (allavega er það þannig í tískunni). Eins og kom fram í þríþrautinni sá Birkir (Norsarinn) um tónlistina og myndina. (meira …)

Getraunir | Engin Ummæli »

Þríþraut FC Bumbi #4

miðvikudagur, 6. janúar, 2010

Sælir Félagar og Áhangendur

Eftir að nýr sigurvegari kom sá og sigraði síðast gefur það vonandi mönnum von um að gera slíkt hið sama. En svo þið vitið það þá eru allir sigurvegarar hjá FC Bumbi (allavega ef þú drekkur smá bjór).

Smá breyting á stigagjöf: Myndagátan heldur sér en hljóðgátan er með 7 mismunandi brotum og gefur hvert rétt svar eitt stig. Tónlistarfimman er með 6 lögum að þessu sinni og gefur því 18 stig.

Senda skal öll svör á drusinn@gmail.com og skilafrestur er til 13. janúar 23:59

Yfir og Út
Føroyingurin

p.s. Ef einhver hefur áhuga á því að koma sem gestur þar að segja taka myndagátuna/hljóðgátuna/tónlistarfimmuna eða bara allt hafði þá bara samband við mig.


Hljóðgátan: Hérna má heyra 7 mismunandi hlátra sem allir koma úr teiknimyndum úr hvaða teiknimyndum koma þeir?


Tónlistar Fimman: Í boði Birkis (Norsara)


Myndagátan: Hver er maðurinn?

Getraunir | Engin Ummæli »

Þríþraut FC Bumbi #3 Svör

mánudagur, 4. janúar, 2010

Kæru Félagar og Áhangendur

Jæja þá er loksins komið að svörunum eftir langa og stranga bið sökum þess hve pistlahöfundur hefur verið í mörgum veislum og gúffað í sig jólamatnum. En eins og svo oft áður þá er betra seint en aldrei og veit ég að sumir hafa beðið þessa pósts með mikilli eftirvæntingu þannig að það má líta á þetta sem Jól fyrir suma.

Lögin að þessu sinni voru:

1. YMO (Yellow Magic Orchestra) – Rydeen
2. Edgar Winter Group – Free Ride
3. Slade – Let’s Call It Quits
4. Gipsy Kings – Baila Me
5. Hljómar – Bláu Augun Þín

Hljóðið:

Í þessu hljóðbroti mátti heyra í Harry Dunne að skíta í bilaða klóstið í fjallakofa Mary Swanson. Gefið var rétt fyrir Dumb & Dumber, Jeff Daniels

Myndin:

Allir þeir sem nokkurtíma hafa horft á sjónvarp í æsku ættu að kannast við þessa hatta en þetta eru auðvita hattar þeirra Pat & Mat eða á íslensku Klaufabárðanna

Þá er komið að því að tilkynna sigurvegara og fleira

Siggi Bahama lét sig ekki vanta í Þríþrautina þrátt fyrir að vera í útlandinu. Hann átti ekki í nokkrum vandræðum með hljóð og myndgátuna en tónlistin var greinilega ekki að hans skapi en náði auðvita að svara Hljómum. 17 stig.
Heimir (Lebowski) er líkt og Siggi ekki í nokkrum vandræðum með hljóðið og myndina en þó er hann með skemmtilegar ágiskanir á lögin t.d. Tea bags – Yeah oooh og Bounce – My balls en hann náði Hljómum 17 stig.
Vigfús (Alkinho) áður en ég les upp gengi Fúsa vil ég koma alls óviðkomandi upplýsingum að, ég gaf Fúsa Ericson síma í jólagjöf. En vindum okkur í svörin hans Fúsa já þau voru öll rétt. 29 stig.
Stjáni er ný og góð viðbót við þátttakendur en eins og svo margir var hann með hljóð og mynd rétt sem og hann náði bandinu Hljómar. 15 stig.
Birkir (Norsarinn) hefur greinilega ekki nennt að renna í gegnum itunes hjá sér en ég myndi veðja á að hann hefði getað gert betur í tónlistinni. Hann ákvað hinsvegar að herma eftir Heimi og Sigga 17 stig.


Fúsi er því ótvíræður sigurvegari þessarar Þríþrautar og er hann vel að þessum sigri kominn enda tekið þátt í flestum Þrautum FC Bumbi. En hvernig er annars Ericson síminn að virka Fúsi eru einhverjir skemmtilegir fítusar á honum?

Yfir og Út
Føroyingurin

Efstir voru:

Getraunir | 2 Ummæli »

Þríþraut FC Bumbi #3

fimmtudagur, 17. desember, 2009

Sælir Félagar og Áhangendur

Heldur dræm þáttaka var síðast og ekki kann ég skil á því hvað orsakaði það. En þar sem ég er nánast spurður daglega hvort ekki eigi að fara að setja upp nýja þraut þá hlítur þáttakana að taka kipp eftir svona langt frí. Að þessu sinni er tónlistar fimman í boði Tomma (Speedo).

Með Hljóðgátuna og Myndagátuna má senda inn 3 svör og þarf að raða þeim upp í 1-2-3, 7 stig fást fyrir rétt svar í 1, 4 stig ef rétta svarið er í 2 og 1 stig ef rétta svarið er í 3. Heildarstigin í pottinum eru því 29 nema annað sé tekið fram.

Senda skal öll svör á drusinn@gmail.com og skilafrestur er til 24. desember 23:59

Yfir og Út
Føroyingurin

p.s. Ef einhver hefur áhuga á því að koma sem gestur þar að segja taka myndagátuna/hljóðgátuna/tónlistarfimmuna eða bara allt hafði þá bara samband við mig.


Hljóðgátan:

Þessi bútur er úr bíómynd ég vil fá að vita hvaða bíómynd og hver er að fá fullnæginguna. (nafn leikarans)


Tónlistar Fimman: Í boði Tomma (Speedo)


Myndagátan: Það sér hver maður að þetta eru hattar/húfur en það er spurt hverjir bera þessi höfuðföt?

Getraunir | Engin Ummæli »

Þríþraut í boði FC Bumbi og Eflu #2 Svör

mánudagur, 30. nóvember, 2009

Kæru Félagar og Áhangendur

Eitthvað var ekki að gera sig í þessari Þríþraut allavega fækkaði þátttakendum til muna. Samt sem áður voru tveir með fullt hús stiga að þessu sinni sem ekki gerðist síðast. Það kannski útilokar það að þessi gáta hafi verið mjög erfið. En hættum nú að væla yfir þeim sem ekki tókum þátt og byrjum að hylla þá sem tóku þátt.

Lögin að þessu sinni voru:

1. Damien Rice – Cheers Darlin’
2. The Pixies – LaLa Love You
3. Toto – Africa
4. Mogwai – Christmas Steps
5. Hell Is For Heroes – I Can Climb Mountains

Hljóðið:

Þetta var Heftarinn góði þeir sem eru enn í skóla ættu að þekkja þetta hljóð sérstaklega núna þegar prófin nálgast.

Myndin:

Hver þekkir ekki þessar fellingar, en þetta er án efa ein sú ljótasta Skjaldbaka sem ég hef á ævinni séð.

Þá er komið að því að tilkynna sigurvegara og fleira

Siggi Bahama lét tónlistina ekki hræða sig frá því að svara þó hún hafi ekki verið hans sterkasta hliða að þessu sinni. Hann náði hljóðinu í fyrsta, myndin þótti honum erfiðari, hundur/fíll/górilla. Hann náði síðan lagi #3 of course og Pixies, því miður var lag #4 ekki Rockin out with my cock out – Electric Giggalo. 11 stig.
Daníel Þór gerir enn betur en síðast og skilar hann inn fullu húsi stiga eða 29 stig.
Tómas (Speedo/Hommi) er greinilega yfir sig hrifinn af Placebo en hann giskaði á að þeir væru með tvö lög í tónlistar fimmunni. Auðvita náði hann lagi #3 en þar við sat. Hann náði síðan hljóðinu í fyrsta en myndin var eitthvað að vefjast fyrir honum líkt og Sigga en Tommi giskaði á Górilla/Fíll/Nashyrningur. 10 stig.
Valli (Döfull) lét sér nægja að svara hljóðinu og myndinni og fékk hann 14 stig fyrir það. Því miður fyrir hann ætlaði Dötti að sparka í nýrun á þeim sem ekki gætu lag #3.
Höddi (Skátastelpan) kemur gríðarlega sterkur inn í þessa þríþraut enda með fullt hús stiga. 29 stig.


Það eru því Höddi (Skátastelpa) og Danni Peters sem fá USB lykil í verðlaun þannig að þeir verða bara að skipta honum bróðurlega á milli sín (neinei þið fáið sitthvorn). Ný þríþraut kemur síðan í vikunni og mun Tómas (Speedo) vera með Tónlistar Fimmuna.

Yfir og Út
Føroyingurin

Efstir voru:

Getraunir | 2 Ummæli »