Þríþraut FC Bumbi og Eflu #2

föstudagur, 20. nóvember, 2009

Sælir Félagar og Áhangendur

Mjög svo góð þátttaka var síðast en á ég von á enn betri þátttöku núna . Eitthvað var þó um að fólk væri ekki að lesa leiðbeiningarnar nægilega vel þar sem flestir skiluðu bara inn einu svari við mynda og hljóðgátunni. Nú er bara að bæta um betur fyrir þá sem voru ofarlega síðast en fengu hvork verðlaun né mynd af sér á síðuna. Dötti sér um tónlistina í þríþrautinni að þessu sinni.

Með Hljóðgátuna og Myndagátuna má senda inn 3 svör og þarf að raða þeim upp í 1-2-3, 7 stig fást fyrir rétt svar í 1, 4 stig ef rétta svarið er í 2 og 1 stig ef rétta svarið er í 3. Heildarstigin í pottinum eru því 29 nema annað sé tekið fram.

Senda skal öll svör á drusinn@gmail.com og skilafrestur er til 27. nóvember 23:59

Verðlaun í boði

Yfir og Út
Føroyingurin

p.s. Ef einhver hefur áhuga á því að koma sem gestur inn líkt og Dötti í þessa þríþraut, hafði þá bara samband við mig.


Hljóðgátan:


Tónlistar Fimman: Vísbendingar fyrir tónlistarfimmuna, öll böndin hafa spilað á Íslandi, öll eru þau erlend og öll spiluðu þau á íslandi eftir aldamótin síðustu.


Myndagátan:

gata4_1

Getraunir | Engin Ummæli »

Þríþraut í boði FC Bumbi og Eflu Verkfræðistofu Svör

fimmtudagur, 19. nóvember, 2009

Kæru Félagar og Áhangendur

Þá er fyrstu þríþrautinni lokið og okkur hefur tekist að fara yfir öll svör. Þáttakan var býsna góð og var talning stiga mjög svo spennandi. En þó stóð aðeins einn uppi sem sigurvegari og var það Heimir Lebowski með 28 stig af 30 mögulegum. Því miður fyrir hann voru verðlaunin ekki raflagnarteikningar gerðar af Eflu heldur USB lykill sem er engu síðri.

Lögin að þessu sinni voru:

1. Led Zeppelin – The Lemon Song
2. Vinir Vors og Blóma – Gott í kroppinn
3. Bloodhound Gang – Bad Touch
4. Peter Gabriel – Sledgehammer
5. Steindór Hjörleifsson – Einu Sinni Á Ágústkvöldi

Aukaspurningin: Þar sem þetta var nú “Tónlistar Fimma” #sex þá fjölluðu allir textarnir um kynlíf á einhvern hátt.

Hljóðið:

Þetta var nú eins og allir heyrðu Lukkuhjól

Myndin:

Auðvita var þetta hann vinur okkar Svarthöfði eða gríman hans allavega.

Þá er komið að því að tilkynna sigurvegara og fleira

Jón Evert átti ekki nokkrum stökustu vandræðum með mynda og hljóðgátuna en honum fataðist síðan flugið þegar kom að tónlistinni var ekki með #4 eða Steindór 24 stig.
Þorsteinn (Ísbjörninn) var eins og margir með bæði myndina og hljóðið alveg á hreinu en skringilegt nokk þá var hann ekki á meðal efstu manna í tónlistinni og var hvergi nærri lögum #2 og #4. 23 stig.
Fúsi (Alkinho) lét skilin sitja á hakanaum þar til á síðustu stundu svona eins og í skólanum og sýndi það sig í útkomunni, hann var það viss á sinni sök með hljóðið að hann skilaði aðeins inn einu svari castanetur. Myndin var ekkert að þvælast fyrir honum en það gerði hins vegar tónlistin og var hann með #1 og #3 rétt. Auðvita hélt hann síðan að Pachabell hefði komið nálægt lagasmíðinni. 15 stig.
Siggi Bahama var aðeins einu stigi frá topp sætinu með 27 stig. En eina sem honum vantaði voru Dóri í lagi #5 og aukaspurningin.
Heimir (Lebowski) sigurvegari þessarar þríþrautar með heil 28 stig en líkt og Sigga vantaði hann Dóra en hann bætti fyrir það með því að svara aukaspurningunni góðu og tryggði sér þar með sigurinn.
Daníel Þór kemur sterkur sterkur inn í tónlistina en hefði hann bara nýtt sér þriggja valmöguleika svörin í hljóðinu hefði hann getað endað ofar. Hann vantaði aukaspurninguna og hljóðið 22 stig.
Baldur (Galdur) var alls ekki langt frá toppnum með 25 stig eftir miklar vangaveltur með móður sinni enduðu þau á röngu svari með flytjanda lags #5 og vantaði hann einnig Sledghammer.
Tómas (Speedo/Hommi) hefur greinilega ekki lesið greinina þar sem tekið var fram að hann mætti svara þremur svörum við hljóðið en hann sá fyrir sér skopparakringlu. Hann var hinsvegar með myndina lög #2, 3 og 5 rétt allt í allt 16 stig.
Ingó Akureyringur var á síðasta nippi með sín svör og eins og hjá Fúsa sást það á útkomunni. Hann var með myndina rétta en giskaði á gamla ritvél í hljóðinu. Hann náði síðan Led Zeppelin, Vinir Vors og Blóma, Einu Sinni á Ágústkvöldi og bónusspurningunni þetta allt gaf honum 14 stig
Elli (Dreifarinn) hefur greinilega gaman af þrennum því hann skilaði inn 7 stigum öllum flokkum eða 21 stig hann vantaði #1 og #3 og flytjandann í #5 sem og aukaspurninguna.
Bjarni Egill (Trommari) kemur nýr inn og kaldur af bekknum, hann vantaði hljóðið en giskaði þó á gírahjól síðan var hann með #4 rangt þó Villains To The Masses Heroes To The Holy – Kicking the habit væri ágætis tillaga einnig vantaði flytjandann í #5. Allt í allt 17 stig.
Elfar Smári kemur nýr inn og lætur heyra í sér en hann var með 4 stig í hljóðinu þar sem hann giskaði fyrst á spilakassa síðan vantaði bara aukaspurninguna í tónlistinni 26 stig.
Höddi (Skátastelpan) var greinilega í engum vandræðum með hljóðið og myndina en það sem dróg hann niður var tónlistin lagaheiti í #2 og 3, rangur flytjandi í #5 og ekki reynt við #4 en þetta allt gaf honum 20 stig.


Ný þríþraut kemur síðan innan fárra daga og vonandi sjáum við ennþá fleiri keppendur og vonandi verður keppnin jafn hörð og núna.

Yfir og Út
Føroyingurin

Efstir voru:

Getraunir | 3 Ummæli »

Þríþraut í boði FC Bumbi og Eflu Verkfræðistofu

þriðjudagur, 10. nóvember, 2009

Sælir Félagar og Áhangendur

Þá er lokst komið að nýjum gátum sem ég veit að allir hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Að þessu sinni verður svokölluð þríþraut þar sem við skjótum saman Tónlistar fimmunni, myndagátunni og hljóðgátunni. Stigagjöf í Fimmunni er óbreytt en fyrir hljóðgátuna og myndagátuna fást mest 7 stig fyrir hvort.

Með Hljóðgátuna og Myndagátuna má senda inn 3 svör og þarf að raða þeim upp í 1-2-3, 7 stig fást fyrir rétt svar í 1, 4 stig ef rétta svarið er í 2 og 1 stig ef rétta svarið er í 3. Heildarstigin í pottinum eru því 24 nema annað sé tekið fram.

Senda skal öll svör á drusinn@gmail.com og skilafrestur er til 17. nóvember 23:59

Verðlaun í boði

Yfir og Út
Føroyingurin


Hljóðgátan:


Tónlistar Fimman: Eitt aukastig fyrir að vita hvernig þessir flytjendur eða þessi lög tengjast.


Myndagátan:

gata4_1

Getraunir | Engin Ummæli »

Svar við hljóðgátu 1

miðvikudagur, 4. nóvember, 2009

Sælir kappar

Tja, ekki er hægt að segja annað en að ég hafi haft rangt fyrir mér varðandi hve auðveld þessi gáta hafi verið.

Alls voru 4 sem sendu inn svar og allir höfðu þeir rangt fyrir sér.

Elfar Smári = svín
Jóhann Føroyingur = Dýragarður
Birkir Norsari = Hundar
Heimir Lebowski = Bóndabær

Rétt svar er auðvitað Hýneur, nánar tiltekið afrískar hýenur.

Ný þraut verður Þríþraut og kynnt frekar seinna

hyena

Getraunir | 2 Ummæli »

Tónlistar Fimma #5 Svör

mánudagur, 2. nóvember, 2009

Kæru Félagar og Áhangendur

Eitthvað hefur þáttaka dalað þannig að þessu sinni munu aðeins svörin koma. Stjórnin ætlar sér að koma með endurbætta útgáfu af gátunum og mun hún líklegast koma upp á mánudag eða þriðjudag. Gátan var að mínu mati nokkuð létt í þetta skiptið enda þeir sem svöruðu með hátt hlutfall stiga.

Lögin að þessu sinni voru:

1. XXX-Rottweiler Hundar – Sönn Íslensk Sakamál
2. Santana – Black Magic Woman
3. Brimkló – Þjóðvegurinn
4. Black Sabbath- Paranoid
5. Jimi Hendrix – The Wind Cries Mary

Þá er komið að því að tilkynna sigurvegara og fleira

Birkir (Norsarinn) var með öll augljósu lögin rétt en þegar kom síðan að laginu sem skilur á milli meistara og meðaljóna þá klikkaði hann en það var lag #3 12 stig.
Þorsteinn (Ísbjörninn) lét bíða eftir sér í þetta skiptið en það var ekki til einskins því hann skilaði inn fullu húsi stiga 15 stig.
Fúsi (Alkinho) var með síðustu mönnum til þess að skila inn en ekki veitt þessi auka tími honum fleiri stig en hann var með #4 og 5 rétt 6 stig.
Siggi Bahama verður líklega ekki sáttur með dóm minn í þesari gátu en hann sendi inn fullt hús stiga nema hvað hann setti Brimkló í svigi fyrir aftan Bó Halldórs en ég skammaði Fúsa einnig í síðustu viku fyrir svipað dæmi 13 stig.
Heimir (Lebowski) var ekkert að tvínóna við þetta og sendi inn stílhreint bréf uppá 15 stig.
Bragi (Fabio) er líkt og frændi hans aðeins meðaljón og var með allt nema #3 12 stig.
Baldur (Galdur) sjaldan fellur eplið langt frá eikinni en hann er líkt og bróðir og frændi aðeins með 12 stig þar sem vantaði lag #3 hann hafði þó rænu á því að giska og var það ZZ-Top með gamla góða smellin Blues your heart away.
Tómas (Speedo/Hommi) er með heilan helling af stigum eða 12 stig en það sem vantaði var lag #1 en skiljanlega hélt hann að þetta væru Portishead með lagið sitt Over en því miður er það ekki rétt en 12 stig engu að síður til Tómasar “snigillinn” Jóhannssonar.

Eins og ég sagði fyrr í póstinum mun ekki koma Tónlistar Fimma #6 fyrr en seinna í vikunni sökum endurskipulagningar stjórnarinnar sem mun að öllum líkindum hittast í dag.

Yfir og Út
Føroyingurin

p.s. Siggi þú verður bara að tækla mig vel og illa á næstu FC Bumbi æfingu :)

Efstir voru:

Getraunir | 9 Ummæli »

Hljóðgáta

miðvikudagur, 28. október, 2009

Sælir félagar og velunnarar

Ég kynni hér til leiks nýja tegund af þraut. Athugið að tónlistarþrautin heldur áfram…
Ég mun koma með 1 hljóð og ykkar hlutverk er að giska á það.
við byrjum þetta að mínu mati frekar auðveldlega en tíminn mun leiða það í ljós

svörum skal skila á e-mail: bragi.brynjarsson@efla.is
Ekki svara í comment hér fyrir neðan

kv. Fabio

Getraunir | 6 Ummæli »