sunnudagur, 5. september, 2010
Nú er komið að úrslitaleik Carslbergdeildar sumarsin og að þessu sinni mætast hin ógnarsterk lið, Hvatberar og FC Gettó.
FC Gettó sigraði lið Black Barbara nokkuð örugglega 3-1 í dramatískum undanúrslitaleik þar sem við fengum bæði að sjá rautt spjald og mark á lokamínútunum. Á sama tíma sýndu Hvatberar sínar stáltaugar þegar þeir báru sigur úr bítum eftir hörkuspennandi vítaspyrnukeppni gegn sterku liði Fart Attack.
Bæði lið eru því öflug og má búast við spennandi leik, vonandi stútfullum af mörkum og glæsbrag.
Bumbi mun að sjálfsögðu sýna leikinn í beinni í samstarfi við forsvarsmenn Carlsbergdeildarinnar og Sportland, íþróttavöruverslun og mun Elvar Geir Magnússon, útvarpsmaður og fótboltaspekúlant lýsa leiknum með stakri snilld. Gunnar Jarl Jónsson hæstarétta- og úrvalsdeildardómari mun dæma leikinn.
Útsending hefst rétt fyrir kl. 17:00 og hvetjum við alla til að kíkja við á www.fcbumbi.com/live og fylgjast með leiknum.
kv. Fabio
mánudagur, 30. ágúst, 2010
Í kvöld mun FC Bumbi í samstarfi við forsvarsmenn Carlsberg-deildarinnar sýna frá öðrum undanúrslitaleik deildarinnar, en í þeim leik munu Black Barbara og FC Gettó etja kappi.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 en útsendingin mun eflaust hefjast eitthvað fyrr með smá upphitun … Stillið því tímanlega inn á fcbumbi.com/live
fimmtudagur, 29. júlí, 2010
Kæru Félagar og Áhangendur
Eftir frábærann sigur í síðasta leik komum við fullir sjálfstraust inn í næsta leik. Næsti leikur er gegn Brostnum Draumum sem þið kannski munið að við mættum í Bikarkeppninni og munum við leita hefnda. Jafnframt má nefna það að þetta er næstsíðasti leikur FC Bumbi í sumardeildinni (meira …)
föstudagur, 23. júlí, 2010
FC Bumbi tók á móti fc gretti á leiknisvellinum á fallegu þriðjudagskvöldi. Áhorfendur höfðu komið sér vel fyrir til að búa sig undir ótrúlega veislu. Bumbi byrjaði gríðalega sterkir og eftir að hafa pressað mikið á vörnina í byrjun leiks kom að því að markmaður grettis myndi brotna og þá var Fritzzzl ekki lengi að stela boltanum af vörninni og þruma á markið.
FC Bumbi kominn yfir (meira …)
fimmtudagur, 1. júlí, 2010
FC Bumbi átti leik við engann annan en Prins Hárfagra Valíant sem var útlægur prins frá bænum Thúle og ákvað að kíkja uppá Leiknisvöll og taka einn leik við Bumbann. Þegar búið var að koma upp myndavél og netsnúru sem er á við 69 limalengdir Bumbaleikmanna gat leikurinn hafist. (meira …)
laugardagur, 12. júní, 2010
Eftir 2. leikja taphrinu er komið að bumbanum að leika við Dynamo Iceland og ætlunin er að sýna þessum pappakössum hvar bumbi kaupir ölið (yfirleitt vínbúð eða bar og þá yfirleitt frá ölvisholti).
Leikurinn fer fram á leiknisvelli þann 13.júní kl 20:00 sem er sunnudagur og eins og allir vita er bumbi einmitt bestur í fótbolta á sunnudögum
sökum mikillar ölvunar um helgar. (meira …)