Æfingaleikur FC Bumbi vs. FC Pump
Æfingarleikur milli FC Bumbi og FC Pump fór fram á æfingartíma okkar á Leiknisvellinum. Var tekinn rosaleg upphitun þrátt fyrir lélega mætingu þar sem leyndir hæfileikar hjá Fabio komu bersýnilega í ljós. Markmaður okkar Alkinho nennti engann veginn að standa í því að hanga í markinu fyrst þetta var bara æfingarleikur og hleypti því öðrum í markið.
Leikurinn byrjaði að krafti en eftir það féll ritari þessarar greinar í dá og vaknaði ekki fyrr en hávært og gott HÓKÝ PÓKÝ ómaði um allt breiðholtið í hálfleik. Búist var við að FC Bumbi væri með forystuna en til að hafa þetta sanngjarnt þá var staðan ennþá 0-0. FC Bumbi byrjaði seinni hálfleikinn að stakri snilld og átti hvert færið á fætur öðru. En í seinni hálfleik hafði Alkinho fært sig aftur í markið en hann kom litlum vörnum við þegar Pumparar skoruðu og staðan orðinn 0-1. Það leið þó ekki að löngu þar til FC Bumbi var búinn að jafna með stórkostlegri stoðsendingu frá Skara beint á Snigilinn sem kláraði með fallegu skoti. 1-1 og spennann í hámarki. Vörnin hjá FC Bumba eftir þetta var á heimsmælikvarða því ætla mætti að hér væri kominn Dino Zoff og ítalska landsliðið 1974. FC Pump réð ekkert við þetta og voru Bumbamenn mun líklegri til að skora. En flautað var til leiksloka og 1-1 jafntefli staðreynd í leik sem var frábær á alla kanta. Nýjustu fréttir herma að FC Pump hafi unnið fyrri hálfleikinn 0-3 en það fæst ekki staðfest að svo stöddu.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


09 mar, 2010 klukkan 18:11
Verst að lenydir hæfileikar halda áfram að vera leyndir þar sem ekki tókst að endurskapa meistarverkið í leiknum sjálfum…
alas, í ódauðlegum orðum forsætisráðherra okkar: “Minn tími mun koma!”
09 mar, 2010 klukkan 23:48
Mjög skemmtilegur leikur þrátt fyrir dræma mætingu í lið Bumbans…
Kostulegt þegar FC Pump klúðruðu dauðafæri á opið markið undir lokin!