Bandýmót á Ólafsfirði
Klukkan er 23:30, Ljónsungar liggja í valnum og Bumbi heldur af stað á bandímót…
Svona byrjar líklega skemmtilegasta ferðalag í manna minnum. Þegar komið var út fyrir borgarmörk vorum við bara búnir að lenda í 1 árekstri og því ljóst að happadísirnar voru með í för. Keyrt var alla nótt norður á leið og fylgdum við næturlæðunni nákvæmlega svo ekki náði myrkrið að svæfa okkur.
Þegar komið var að Baulu var auðséð að fylla þurfti á bjórbirgðir úr skottinu. En þegar seinni bíllinn rann í hlað voru farþegar fyrsta bílsins búnir að fjarlæga allar flíkur af líkömum sínum og réðust í átt að grunlausum félögum sínum í seinni bílnum. Þótti þetta svo stórgóð hugmynd að fórum við allir úr fötunum og streakað var framhjá bensínstöðinni og hennar öryggismyndavélum í átt að þjóðveginum. Myndir voru teknar af þessum fríða flokk sem senda átti áfram á Guðbjörn, bandímótsstjóra og segja honum að við værum lagðir af stað.
Við Staðarskála var sparkað í nokkra bolta og endaði einn þeirra ofan á skálanum sjálfum. Sem betur fer er Formaður vor léttur í lund sem af líkama og klifraði uppá Staðarskála og frelsaði boltann.
Ljósmóðirin var búin að kíkja á Ólafsfjarðargrúppuna á Facebook og sá þar margar föngulegar ungar stúlkur og var því ekki um annað að ræða en að henda símanum út um gluggann við Staðarskála svo kærastan væri ekkert að trufla. Sú lét nú svona smáatriði ekki setja sig út af laginu og hafði samband við bæði Formann og Framkvæmdarstjóra sem héldu drengnum á sinni bestu hegðun.
Ólafsfjörður tók vel á móti Bumba með stilltu og sólríku veðri. Ákveðið var að banka upp á hótelinu og fá lykla af bústöðunum en fótbolti spilaður að vanda á meðan lykla-pétur hótelsins reif sig á fætur á þessum óheiðarlega tíma. Eftir að bílarnir voru affermdir og potturinn fylltur var engin leið að svæfa mannskapinn. Flestir voru manaðir naktir út í tjörnina og aðrir “misstu“ hlutina sína svo synda þurfti eftir þeim.
Bandímótið hófst svo með pompi og prakt með skrúðgöngu frá Tjarnarborg og niður að íþróttarhúsinu þar sem mótið fór fram. Flestir heimamenn voru greinilega forvitnir að vita hvaða fábjánar væru komnir til þeirra þvi ansi mörg augu hvíldu á flokki Bumbans alla leiðina. Reyndar alls ekkert óalgengt að það gerist þegar einkennisbúningurinn er settur upp…
FC Bumbi var 3 í röðinni með kynningaratriði. Atriði 1 og 2 voru stórkostleg leik- og söngatriði, augljóslega þaulæfð af fagfólki síðan í september. Bumbamenn voru skjálfandi í beinunum, ræðandi sín á milli hvað í fjandanum skyldi gert þar til ákveðið var að halda okkur við eitthvað sem við kunnum, Hóký Póký. Til að setja kommuna yfir i-ið var Lebowski sett það hlutverk að hlaupa óður með fánann hringinn í kringum liðsmennina. Framkvæmdarstjórinn fór í pontu til að kynna þetta atriði og mátti heyra saumnál detta á meðan hann og hinir komu sér fyrir. Drengurinn hafði greinilega lesið dagbækur allra þorpsbúa því hann náði einhvernvegin að bræða okkur inn í hjörtu þeirra og lyfta allri pressu af liðinu sem skilaði sínu Hókí pókí af einskærri snilld, að vanda.
Fyrsti leikur Bumbans var við Hafblik og var ljóst strax við fyrstu sýn að Bumbi kunni sitthvað fyrir sér í bandý, aðallega detta, meiða sig og gera grín að hvor öðrum. Þrátt fyrir fötlun leikmanna náðist að merja sigur, 4 – 1 að mig minnir og undirritaður með þrennu í fyrri hálfleik, greinilega miklu betri í bandý en fótbolta. Eftir að Ljósmóðirin réðst í bræði sinni á saklausan leikmann Hafbliks rauk Alkinho að drengnum, hirti af honum kylfuna og rak í skammarkrókinn.
Á meðan beðið var eftir næsta leik myndaðist sterk vinátta á milli Bumba og grunnskólakennaranna sem á rætur að rekja til hvolpaára þar sem FC Bumbi óttast og virðir sína heldri og betri. Dömurnar hafa svo hrifist af háttvísi, hógværð og fegurð Bumbamanna. Hvöttu við þær til dáða og þær okkur það sem eftir var móts.
Næst voru kylfurnar mundaðar á móts við Krúsó sem mættu til leiks með bandý landslið Andabæjar. Krúsó eru meistarar bandýmótsins seinustu 30 ár og var engin breyting á því í ár. Þeir eru mjög illa liðnir í bænum sökum þess og hefur komið til tals að banna þá á næsta ári sökum of mikils kunnáttu á íþróttinni. Var því mikil sorg í höllinni þegar FC Bumbi gengu stoltir en sigraðir af velli, 3 – 1 í alltof spennandi leik.
Þar sem vináttan við Fiðrildadömurnar úr grunnskólanum var svo sterk var fengið leyfi til að spila æfingaleik rétt fyrir úrslitaleik mótsins. Gekk þar mikið á og sett Fabio sitt fjórða mark með mikill aðstoð Ljósmóðurinnar og kórónaði frammistöðu sína og hirti titlana, besti maður Bumba, markahæsti maður Bumba og hárprúðasti maður Bumba. Skiptir engu að maðurinn sjálfur skrifi þessa færslu. Leikurinn var hin mesta skemmtun og hafði dómari leiksins á orði við úrslitaliðin að svona ætti bandýleikur að vera!
Leikurinn fór 4 – 2 Fiðrildunum í vil og átti dómari leiksins nokkra gullmola. Fabio átti sterka markvörslu sem annar dómarinn dæmdi löglega en hinn var ekki á sama máli og dæmdi 2 mörk í staðinn.
Bandýmótið leið svo fljótlega undir lok og við tók 2-3 tíma Siesta sem menn nýttu sumir hverjir til svefns, aðrir fóru í pottinn og svo var étið. Elítan snæddi á hótelinu ásamt Mjallhvíti og nokkrum af hennar dvergum en aðrir létu sér nægja að grilla í bústöðunum.
Lokahóf og verðlaunaafhendingin fór fram í Tjarnarborg og var gífurlega fjörug. FC Bumbi fékk hyllingu sem best hæfir kóngafólki því þegar Liðið tók á mót verðlaununum “Besta Nýja Liðið“ stóðu gestir upp og klöppuðu fyrir leikmönnum, ekki leiðinlegt það. Siggi Bahama varð einnig þess heiðurs njótandi að sigra kraftakeppni mótsins með sínum sérhönnuðu armbeygjum og er þess vert að nefna að það var fyrsta medalía sem FC Bumbi hefur náð að hnupla! Einnig náði Alkinho að láta draga sig út í happadrætti og átti hann það fyllilega skilið, enda aldrei svo mikið sem unnið 1 pókerleik, leik í spilakassa, lengju seðil eða partý & co.
Mörg fleiri verðug verðlaun voru veitt en þar sem ég er að stelast til að skrifa þetta í vinnunni verður ekki farið nánar út í þau.
Lokhófið var með sérstakan skemmtikraft, fluttan inn frá Jan Mayen en þar var á ferð hinn kyngimagnaði Matti Matt, hálfbróðir Völu Matt sem setti magnarann upp í 11 og kýldi upp fjörið. Var þá ekki hlaupist undan bagga og dansað til að gleyma þar til Matti var búinn að slíta alla strengina á gítarnum og loka þurfti dyrum. Fólk lét það ekki á sig fá og fóru Bumbamenn í bústaði sína þar sem drykkja og almnn dólgslæti héldu áfram. Bahama hafði tekið með sér hátalara sem hann stal af Iron Maiden um árið og þurfti sér bíl til að flytja norður. Ipodinn var tengdur og seiðandi tónar flæddu yfir fólkið sem hafði fengið sér sæti í heita pottinum. Nokkrir áttu leið til okkar og voru sumir þeirra í annarlegu ástandi svo ekki sé meira sagt, Lebowski bretti þá upp ermar og jós sinni föðurlegu ást yfir þá sem lengst fóru yfir drykkjar- og efnaþol sitt.
Formaður hafði keypt pakka af alkazeltser til að sporna við aukakvillum brennivínsins og eftir að Alkinho hafði étið 17 töflur á hálftíma deildi restin af liðinu 3 töflum bróðurlega á milli sín og mátti vart sjá að menn hefðu nánast ekkert sofið í 3 daga, drukkið síðan um miðbik Föstudags og keppt á stórhættulegu og krefjandi bandýmóti!
Að fara heim var ekki efst á óskalista manna, helst hefðum við allir viljað hoppa aftur í tímann og endurtaka alla þessa gleði hið snarasta. Sjaldan fá menn það sem þeir vilja og var því lagt af stað suður rétt um 14:00, ekki nema ca 18 tímum eftir að Alkinho hafði klárað að pakka í töskuna sína og sest upp í bíl. Keyrt var beinustu leið á ættarmót Fabio sem haldið var á gatnamótum Þjóðvegs 1 og 82 en þar voru afi hans og amma stödd fyrir einskæra tilviljun.
Samið hefði verið um matarstopp á Café Síróp á Hvammstanga þar sem Fluffy og Fabio verða við störf í sumar og tekinn var fótboltaleikur á battavellinum þar beint fyrir ofan. Ekkert merkilegt gerðist þar, enginn meiddi sig og ENGINN fékk boltan í hausinn á mjög vandræðalegan hátt. Talað hafði verið um að stoppa stutt í Sauðburði á Staðarbakka og átti Ljósmóðirin að fá tækifæri til að taka á móti lambi en ekkert var úr þar sem Bæði Ljósmóðirin og Alkinho voru yfirbugaðir af heimsýki og bruna þurfti beint í bæinn.
Liðsmenn Bumba lögðu af stað í þetta ævintýri klukkan 23:30 á Föstudegi með himinháar væntingar. Ég veit ég tala fyrir alla sem fóru þegar ég segi að þessi helgi fór langt fram úr þeim. Móttökurnar sem við fengum verða lengi í okkar minnum og er það okkar skoðun að á Ólafsfirði búi vingjarnlegasta og skemmtilegasta fólk jarðar. Hefur komið til umræðu inna stjórnar að festa kaup á félagsheimili þarna fyrir norðan til að “þurfa“ að koma oftar í heimsókn. Bandýmót þetta er stórkostleg skemmtun og erum við afar þakklátir fyrir að fá að taka þátt og einnig afar ánægðir með að Ólafsfirðingum þótti gaman að okkur líka.
Takk fyrir okkur Ólafsfjörður, sjáumst aftur á næsta ári!
Fabio
Formaður


17 maí, 2010 klukkan 14:43
jahahá vel skrifað og afar fallega orðað einnig vel ritað og frábærlegast stafað
ef ég má bæta við: sparkaði ENGINN boltanum fast í mótherja sinn og fékk hann beint í andlitið eftir að boltinn skoppaði af klettbyggða mótherjanum
17 maí, 2010 klukkan 18:09
frábær umsögn um vægast sagt skemmtilegustu ferð ársins!!!
ólafsfirðingar eru ljúflingar upp til hópa og verður þetta klárlega endurtekið að ári !!!
19 maí, 2010 klukkan 17:03
Takk fyrir þessi góðu orð í okkar garð og Ólafsfirðinga allra. Þið voruð suðvestur horninu til sóma og betri gesti er erfitt að fá. Komið fagnandi að ári, munið bara að æfa ekki.
p.s. Er hægt að fá inngönu í FC-Bumbi, plííííís
19 maí, 2010 klukkan 17:04
Takk fyrir þessi góðu orð í okkar garð og Ólafsfirðinga allra. Þið voruð suðvestur horninu til sóma og betri gesti er erfitt að fá. Komið fagnandi að ári, munið bara að æfa ekki.
p.s. Er hægt að fá inngöngu í FC-Bumbi, plííííís
19 maí, 2010 klukkan 18:25
Lebowski þakkar fyrir sig. Stórskemmtileg ferð