Fc Bumbi vs Grettir
FC Bumbi tók á móti fc gretti á leiknisvellinum á fallegu þriðjudagskvöldi. Áhorfendur höfðu komið sér vel fyrir til að búa sig undir ótrúlega veislu. Bumbi byrjaði gríðalega sterkir og eftir að hafa pressað mikið á vörnina í byrjun leiks kom að því að markmaður grettis myndi brotna og þá var Fritzzzl ekki lengi að stela boltanum af vörninni og þruma á markið.
FC Bumbi kominn yfir gegn feita appelsínugula kettinum og áhorfendur byrjaðir að taka við sér.
En þar sem áfengi er betra en áfangi ákvað Norðmaðurinn að Bumbi skyldi bjóða Gretti uppá eitt mark í skiptum fyrir þriggja gúlpa sop af bjór. Var þetta ákveðið og boltanum gefið leyfi til að fljóta inn.
Staðan orðin 1-1 og flautað var til hálfleiks. En þá ákvað Lebowski að taka á sig frábæra hálfleiksræðu sem má sjá hér.
Hafði þetta gríðarlega áhrif og komu Bumba menn gríðarlega grimmir til leiks í seinni hálfleik. Enn eitthvað klikkaði þá í vörninni og gerðist þá þetta:
Það má alveg segja að þessi bolti hefði legið inni hjá öllum öðrum en Alkinho, stórkostleg varsla.
Eftir mikla pressu hjá Grettismönnum sem meðal annars markmaður þeirra tók þátt í með stórum skógarhlaupum, sást bara bersýnilega hvaða lið vildi vinna þetta og var það Bumbi. Undir lok leiksins skilaði það sér fullkomlega þegar Galdur kemur skíðandi upp vinstri kantinn og gefur þessa gullfallegu sendingu á Fritzl sem skorar með öruggu skoti.
2-1 fyrir Bumbamönnum og leikurinn flautaður af. Fagnaðarlæti urðu rosaleg og dansinn dunaði með öl við hönd fram eftir nóttu.
Út og Inn
Snigillinn


23 júl, 2010 klukkan 11:55
Stórkostlegt! Alltaf gott að geta gefið svona áhrifamikla hvatningarræðu.
23 júl, 2010 klukkan 15:52
Glæsilegt, þetta var svaka leikur
23 júl, 2010 klukkan 17:14
Risastórt húrra fyrir pistlahöfundi
já og sprettinum mínum
og eitt böh markmanninn sem tók markið af fúsa
24 júl, 2010 klukkan 09:02
Algjör snilld drengir mínir. Þessar fregnir ylja mér á köldum vinnumorgni
24 júl, 2010 klukkan 14:41
Áfengi er klárlega betra en áfangi… en saman var þetta fáranlega góð blanda.
Djöfull var næs að við skyldum setja þetta mark þegar aðeins 1-2 minútur voru eftir af leiknum.
Snilldar grein