Magni-ficent heiðursfélagi
Nú er komið að því að svipta hulunni af nýjasta heiðursmeðlim FC Bumba. Mun það vera hinn kyngimagnaði Magni.
Magni hefur snert hjörtu og prívat svæði flestra landsmanna oftar en einu sinni á þeim fjölmörgu skólaböllum og tónleikum sem drengurinn hefur leitt með stórsveit sinni Á móti sól. Utan landsteinanna er hann best þekktur fyrir að kenna gömlum rokk hundum Hollywood hvernig íslenskir sveitadurgar munda gítar og mic. Kraftur og kynþokki Austanmannsins fór sem eldur í sinu þvert í gegnum Bandaríkin og fær hann enn þann dag í dag sendar nærbuxur heimavinnandi húsmæðra frá Kansas ásamt ástarbréfum úr fangelsum.
Þó fáir vita er Magni einnig mikil fótboltabulla. Hann vill sjá hörku, karlmennsku og miskunnarleysi á vígvelli fótboltans og skal því engan undra hví hann styður FC Bumba af heilum hug. Hann er miklu meira en spenntur, fyrir þér, mér og öllum öðrum sem elska FC Bumba og var þess vegna afhent heiðursmeðlima skírteini við hátíðlega athöfn rétt áður en kappinn steig á svið til að trylla líðinn enn á ný.
Það er okkur mikill heiður að bjóða Magna til sætis við hliðina á Hemma Gunn sem heiðursmeðlimur FC Bumba og erum við ánægðir að sjá hve mikið hann kann að meta þessa dýrmætu viðurkenningu.
Heiðursmeðlimasíða Magna
Kv. Fabio
Formaður




18 mar, 2010 klukkan 11:07
MAGNAÐ!
18 mar, 2010 klukkan 11:23
Kyngi!
18 mar, 2010 klukkan 17:29
já þetta var bara tímaspursmál… hann er búin að vera væla í okkur í svona 3 mánuði að fá að koma…
þannig velkomin magni…