könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

Sumarið er komið….

Kæru jafningar og hinir…

Á Formannsfund Carlsbergdeildar mættu bæði formaður og framkvæmdarstýra Bumbans. Lesblindi framkvæmdarstjórinn var strax valinn úr fríðum hópi til að draga í riðla og gerði með stakri prýði, séstaklega þar sem hann fann Ljónsungana og setti í okkar riðil. Ástæða þess að við viljum fá þessa menn í okkar riðil er sú að enginn annar en Dr.Krizz eða Stína eins og við þekkjum kauða, mun yfirgefa Bumbann og ganga til liðs við ungviði Múfasa. Það er alveg öruggt að Ljónsungar muni eflast gífurlega enda hefur Stínu farið mikið fram undir leiðsögn Bumbans. Það er þó með þungu hjarta sem við kveðjum drenginn en erum þó vissir að við höfum ekki séð hann í bleiku og grænu dýrðinni í seinasta sinn. Mun þetta verða opnunarleikur mótsins og því ekki úr vegi að byrja sterkt, 3 stig í hús og við sýnum af hverju konungur ljónanna er í Bumba!

Riðill okkar hljómar svona:

Liðin:

FC Grettir kom sá og skíttapaði í vító fyrir ekki löngu

Dynamó Iceland varð Bumba engin fyrirstaða í vetur

Prins Valíant afmeyjaði Bumba í vetrardeildinni í fyrsta leik og verður því mikil gleði að hefna fyrir þær ófarir, skemmtilegir drengir engu að síður!

KF Adriano mættum við á Kjarnamóti þar sem þeir unnu 4-2, misnotu 17 vítaspyrnur og Bumbi var fullur

Önnur lið hafa ekki orðið á vegi Bumba en nokkur eru þó þekkt. Til að mynda eiga Brostnir draumar lang versta stuðningsmannalag í sögu íþrótta, meira að segja Bumbi væri stoltur af þessu. Þeir tefla iðulega fram ólöglegum eða ljótum leikmönnum…

Hvatberar eiga margt sameiginlegt með hinni stórmerkilegu Tonya Maxine Harding og þá einna helst að ráðast á sterkustu mótherja sína og gera þá ókeppnishæfa. Lið Bootcamp, sem er sigursælasta lið Carlsberg keppninnar dróg sig úr keppni eftir að Hvatberar fótbrutu þeirra besta mann í æfingaleik á dögunum. Enginn skal þó örvænta því Bumbi hefur látið rétt yfirvöld vita og þau sent sína bestu menn okkur til verndar.

FC Gettó eru væntanlega stórhættulegir rapparar sem koma þrælvopnaðir til leiks.

Þetta er nokkuð erfiður riðill að mínu mati en það er bara skemmtilegra!

Bikarkeppnin:

FC Bumbi keppir í fyrstu umferð bikars við Brostna Drauma. Er þar stórhættulegt lið á ferð sem þjálfað er af Hannesi Þór markmannsskvísu Fram. Liðið er að ég held skipað geldollum úr verlzó, árgerð ca.’84-85 og verður erfiður mótherji þar sem mig grunar að þeir viti að fótbolti sé kringlóttur og að markmaður eigi að vera með hanska. Við mætum auðvitað dýrvitlausir með bjór undir belti og söltum þessa drengi en meira um þennan leik seinna.

Yfir og framhjá
Fabio, Formaður

6 Ummæli

  1. Tussusnilld eða eins og segir í kvæðinu If you are losing just get drunk

  2. Þetta stuðningsmannalag er náttúrulega lag sökum þess að Hreimur syngur. Allir Bumbi menn ættu nú að vita að Hreimur er náskyldur Fúsa okkar og þykir mér skrítið að hann skuli ekki enn vera kominn í bleika búninginn!!

  3. Þetta verður gaman gaman

  4. þetta verður gríðarmikil gleði og mikið gaman…

  5. Eins gott að þið haldið ykkur inní bikarkeppninni þar til ég verð orðinn frískur!

  6. þetta verður snildin ein!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook