Þríþraut #5 Svör
Kæru Félagar og Áhangendur
Þá eru þríþrautirnar að líða undir lok vegna léglegrar þáttöku undanfarið og mun ég reyna að koma með eitthvað í staðin þó svo ég sé ekki búinn að láta mér detta neitt almennilegt í hug. Því vil ég byðja þá sem hafa eitthvað fram að færa að koma með uppástungur í ummælin hér fyrir neðan. En nú skulum við vinda okkur í svörin.
Lögin að þessu sinni voru:
1. Peter, Bjorn & John – Young Folks
2. Supertramp – Goodbye Stranger
3. Lovin’ Spoonful – Daydream
4. Whistling Jack Smith – I Was Kaiser Bill’s Batman
5. Focus – Hocus Pocus
Hljóðið:
Hérna mátti heyra í :
1. Total Recall
2. X-Files
3. The Terminal (min 2:10)
4. Kill Bill
5. The Andy Griffith Show
6. Steamboat Willie
7. Bridge Over The River Kwai
Myndin:
Ég var kannski full andstyggilegur með þessa mynd en hér má sjá Vinyl plötu sem er rauð á litin en ekki svört eins og þær eru venjulega.
Þá er komið að því að tilkynna sigurvegara og fleira
Tommi (Speedo) var bara nokkuð góður í þessari þríþraut, hann er þó ekki mikið inní sænskri tónlist þar sem hann klúðraði fyrsta laginu. Í hljóðgátunni vantaði síðan Total Recall, Kill Bill, Andy Griffith Show og Mikka Mús. Hann féll í gildruna með litinn á vinyl plötunni en giskaði þó á boomerang. Total 15 stig
Birkir (Norsarinn) hefur ættir að rekja til Noregs en þrátt fyrir það gat hann sænska lagið sem og það hollenska Hocus Pocus en annað var það ekki. Í hljóðinu var hann með X-Files, Kill Bill, Andy Griffith og Mikka Mús. Hann reyndi ekki við myndina en þegar hann var spurður sagðist hann halda að þetta væri sólin. Total 10 stig
Tómas sýndi megn sinn og mátt með því að sigra síðstu þríþrautina (allavega í bili). Hann er vel að sigrinum kominn en vil ég þó setja spurningarmerki við sigur hans þar sem hann er svo til nýbyrjaður að skrifa greinar hér á síðunni og stuttu seinna vinnur hann þríþrautina.
Yfir og Út
Føroyingurin


15 mar, 2010 klukkan 00:29
Hlakka til að sjá nýjar þrautir og lofa bættri þáttöku af minni hálfu. Notepad skjölunum verður breytt í svör!
15 mar, 2010 klukkan 14:32
Við þurfum að finna leið til að virkja allan þennan fjölda af aðdáendum til að taka þátt!
15 mar, 2010 klukkan 15:18
Já allar uppástungur vel þegnar!!