könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Føroyingurin: Hér er fjandi góð umfjöllin á ferðinni, mig minnti þó að ég hefði skorða tvö ef ekki þrjú mörk í þessum...

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

Æfingaleikur FC Miroslav vs. FC Bumbi

FC Bumbi tók boði FC Miroslav um æfingarleik og fór hann fram í Safarmýrinni. Góð upphitun fór fram fyrir leik, en ætla mætti að þessi leikvöllur sé staðsettur í Bólívu í u.þ.b 3000 metra hæð þvi raki, mistur,heitt temprað loftslag og enginn bjór gerðu Bumba mönnum gríðalega erfitt fyrir. En þrátt fyrir það byrjuðu FC Bumbi að krafti og voru ekki lengi að koma boltanum í netið þegar Galdramaðurinn tók boltann á eigin vallarhelmingi og keyrði upp allan völlinn og skoraði með föstu skoti fyrir utan teig. Staðan 0-1 og áhorfendur rétt að koma sér fyrir.

Eitthvað byrjaði þó bjórskorturinn að sýna sig því Miroslav skoraði fljótlega nokkur klaufaleg mörk. En Galdramaðurinn lét það ekki stoppa sig og eftir frábæra sendingu frá Dreifaranum þá þakkaði Houdini fyrir sig með fallegu marki. Staðan 4-2 en FC Bumbi setti þá í lás í vörninni og átti Miroslav í stökustu vandræðum með að ná skoti á markið og má það þakka mörgum góðum mönnum en gaman er þó að nefnast á nýbúa FC Bumba samfélagsins eða eins og ég kýs að kalla hann Maneater þar sem hann var oft á tíðum að éta upp mann og annan á vellinum. Ákveðið var að taka skyldi hálfleik í þessum maraþonleik sem margir telja að hafi staðið yfir í fleiri daga vegna ofskynjana útaf bjórskorti.

FC Bumbi byrjaði eins og í síðustu leikjum hreint magnaðir í seinni hálfleik en leyfðu samt Miroslav að skora nokkur mörk til að þakka fyrir gott boð. Varamenn okkar héldu uppi gríðalega góðri stemmingu með hressandi söngvum og bylgjum sem stjórnað var af Færeyingnum. Var ákveðið að stöðva leikinn þegar heimamenn höfðu skorað sjö mörk gegn okkar tveimur en var tekin vítaspyrnukeppni til að útkljá úrslit. Þar skoraði hver maðurinn á fætur öðrum þar til kom að manni sem alltaf er í fullri reisn og skaut hann í slánna og ósigur FC Bumba staðreynd. Skemmtilegur leikur þrátt fyrir það og hreint ótrúlegt að Miroslav hafi ekki verið með varamenn í þessum langa leik.

Ummæli kvöldsins á tapsár Valsmaður : „Hvað!, Stútaði þvottavélin búningunum ykkar!” .

Sjónvarpsskutla kvöldsins: Dreifarinn
Tæknitröll kvöldsins: Fabio og Alkinho
Mæting kvöldsins: Bahama man
Söngvari kvöldsins: Norðmaðurinn
Vörn kvöldsins: Skari
Blautbols sigurvegari kvöldsins: Fritzl

Út og Inn
Snigillinn(Speedo)

8 Ummæli

  1. Skemmtilegur leikur… hefðum mátt setja fleiri mörk!

  2. Við mætum þeim aftur á Leiknisvelli og mun þar rigna mörkum!

  3. Ég vil líka minna menn á það að Miroslav spilaði manni fleiri góðan part af fyrrihálfleik þegar þeir voru 8 gegn okkur 7.

  4. Þetta eru þekkt austantjaldsbrögð og mun eftirlit verða hert til muna fyrir næsta leik.

  5. Taka menn ekki eftir því að Bumbi hefur ekki sigrað leik eftir að ég datt út í meiðslum eftir eina bestu markvörslu sem sést hefur á þessu ári. Ég vill meina það að varnartröllið og framtíðar aðal makrkvörður liðsins sé liðinu gríðarlega mikilvægur og mun það sjást í næstu eða þarnæstu viku þegar ég get hlaupið án þess að eiga séns á því að missa getnaðarlimin af sársauka.

  6. Vissulega er þín sársaknað, sérstaklega þar sem núverandi markmaður liðsins fæst ekki til að vera í markinu…

  7. Vatnsberi kvöldsins: Heimir Lebowski

  8. YESS!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook