könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

Eagleeee!

FC Bumbi tók leik við Ernina á jafnsléttunni á Leiknisvellinum. Bumbamenn mættu fyrr og tóku æfingu áður en aðalleikurinn byrjaði og skipti það engu þegar á hólminn var komið, því FC Bumbi byrjaði að gríðalegum krafti og var Ljósmóðirinn ekki lengi að setja boltann í eigið mark þrátt fyrir að mega verja boltann, fyrst hann var nú markmaður.

Spilamennska hjá Bumba var hreint frábær og leikurinn gríðalega jafn, og átti hvort lið yfir 400 færi. Skipta þar Bóner og Galdur um 380 færum jafnt á milli sín með stakri snilld. Gríðalegur kuldi var í lofti hjá öllum nema Alkinho sem hafði klætt sig í krummafót og var eitthvað öfugur í þessum leik. Strax í byrjun seinni hálfleiks setti FC Bumbi í lás og komust Ernirnir varla yfir miðju, hreint ótrúleg svifting sem enginn hafði séð fyrir.

Sást það bersýnilega þegar Alkinho sem var í algjöru rugli sökum mikills bjórskorts gaf kómíska sendingu á Bóner sem með miklu basli náði að skora fallegt skallamark. Staðan 1-1 og var þessi saga nú þegar kominn til næsta bæjar. Leikurinn jafn enda gríðalega jöfn lið á pappírunum.

Leiktíminn rann út og ákveðið að taka vítaspyrnukeppni, hún var hreint ótrúlegt sjónarspil að fylgjast með og þegar allir meðlimir FC Bumbi höfðu tekið spyrnu sást það bersýnilega að jafntefli var staðreynd. Ernirnir sögðust reyndar hafa skorað meira en þegar gæsir sáust fljúga yfir völlinn og gefa skít í það, var lítið hægt að gera og jafntefli það eina rétta í stöðunni.

Út og Inn
Snigillinn(Speedo)

2 Ummæli

  1. Alkinho og Fabio tóku vörnina traustum tökum í seinni hálfleik og var það ekki fyrr en framkvæmdastjórinn fór í lautarferð að 1 mark lak inn. Það þarf þó auðvitað engum orðum um það að fara að Fabio hinn fagri var búinn að moka upp skítinn sem Alkinho skyldi eftir sig allan tímann.

  2. Ætla klárlega fagna svona næst þegar ég kem út úr markinu og skora

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook