FC Bumbi – Íslandspóstur 1-4
Það var engu líkara en sjálfur pósturinn Páll hefði mætt á völlinn með Íslandspósti seinasta miðvikudag þegar við Bumbudrengir og stúlka biðum í lægra haldi fyrir bévítans rauðliðunum. Vitað var fyrir leik að það yrði á brattan að sækja enda fyriliðinn búinn að leiða menn sýna á toppinn á deildinni með góðum sigrum á liðum FC Sálin, Innri Fegðurð og Dynamo Iceland.
FC Bumbi mistókst að fylgja eftir góðum sigri á KF Mjöðm og er það eingöngu lélegum markmannshönskum að kenna! FC Bumbi átti eina hættulega færi leiksins og varð það að stórglæsilegu marki beint úr hornspyrnu. Tommi Speedo og Kári bróðir gerðu vel þarna.
Það sást glitta vel í örvæntingu Íslandspóstmanna í stöðunni 3-1 þegar þeir reyndu hverja sirkús sendingu á eftir annarri. Greinilegt að hlátur og gamansemi okkar er að fylla andstæðingana af óstjórnlegri hræðslu…
Mæting á leikinn var verulega góð, ég held við höfum verið um 20 leikmenn og er þetta kannski met í Carlsberg deildinni. Fúsi markmannsalki átti ótal góðar vörslur en ég held að hann gráti enþá kloppa markið sem ætti auðvitað að skrifast á hreðjarnar hans!
Við þökkum póstberum fyrir skemmtilegan leik!
kv. Fabio


21 nóv, 2009 klukkan 11:38
Ef bara hreðjarnar á Fúsa hefðu verið 20. sinnum stærri… :’(
21 nóv, 2009 klukkan 16:19
Þakka fyrir góðan leik og mikla skemmtun bumbar mínir
gangi ykkur vel það sem eftir lifir móts