könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

FC Bumbi vs Bananar

FC Bumbi mætti Bönunum á miðvikudaginn. Kalt var í veðri og snjóaði fyrir leik, sem þýddi að mikinn bjór þurfti í mannskapinn til að halda á sér hita. Djöfullinn hafði verið búinn að espa Banananana upp og komu þeir því sterkir til leiks. Til að kveikja upp í leikmönnum voru allir skyldugir til að sjá blátt eista Ljósmóðurinnar eftir það gat leikurinn hafist. Leikurinn byrjaði af krafti og komust bananarnir í 0-2 eftir tvö mjög óspennandi og óþarfa mörk. En var þá komið að Bónernum að komast í hóp fallegra manna með hreint mögnuðum snúning fyrir utan teig sem endaði stönginn inn. Staðan orðinn 1-2 og áhorfendur fóru að taka við sér sem voru auðvitað allir á bandi FC Bumba.

Føroyingurinn tók þá að sér að klára hlut sem við höfum verið latir við í síðustu leikjum með því að leggja boltann auðveldlega í hornið þar sem Alkinho átti engan möguleika að verja. Bananarnir voru mættir til leiks í grænum náttfötum og það greinilega truflaði leikmenn því þeir bættu síðan við fjórða markinu. Staðan 1-4 og u.þ.b. 11 mínútur búnar. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks komst vörn og sókn hjá Bumbanum í gang og áttu við í engum vandræðum með að halda boltanum frá báðum mörkum og þá sérstaklega formaður vor sem sýndi oft á tíðum takta sem mætti líkja við Carlos Valderrama þegar hann gjörsamlega labbaði framhjá hverjum manninum á fætur öðrum. Í hálfleik eftir að hafa tekið gott Hókí Pókí var ákveðið að núlla skyldi fyrri hálfleikinn og FC Bumbi því með góða stöðu að vinna leikinn.

FC Bumbi hefur verið á stöðugri siglingu eftir 2 sigurleiki í síðustu tveimur leikjum og sást það að eldmóðurinn slökknar aldrei. Strax í byrjun seinni hálfleiks lét 2 metra maðurinn sig falla innan teigs ekkert dæmt en Moonerinn var ekki lengi að átta sig og skoraði fallegt mark. Staðan orðinn 1-0 í seinni hálfleik og mikill fagnaðarlæti brutust út og sannkölluð sambastemming var á áhorfendapöllunum. Eftir þetta mark setti Alkinho bjórinn á jörðina og byrjaði að verja eins og SÁÁ væri á eftir honum eða eins og haft er eftir fotbolti.net „næsti Rene Higuita,hreint ótrúlegur leikmaður“.

Flautað var síðan til leiksloka og sigur hjá FC Bumbi í seinni hálfleik staðreynd eftir tíðindalausan fyrri hálfleik. Maður leiksins er eftirsóttasti maður carlsbergdeildarinnar enda hefur hann verið að fá fjölda gylliboða en ekkert lið hefur þó efni á þessum bráðefnilega drykkjumanni sem varði yfir 17 markskot bananamanna í þessum bráðskemmtilega leik.

FC Bumbi vill þakka Bönunum fyrir skemmtilegan leik og krefst þess að fá rematch þar sem Bumbinn mun vinna báða hálfleika.

Inn og út
Snigillinn (Speedo)

2 Ummæli

  1. Stórkostleg samantekt að vanda og ekki stakt orð lygi!

    Verið er að vinna í að redda æfingaleikjum til að viðhalda stöðugri drykkju áður en slökkviliðinu verður kastað á bálið hinn 24. Mars

  2. Ég mætti á staðinn og horfði á síðustu 10 mínúturnar af fyrri hálfleik og allan seinni hálfleik og það eina sem ég sá var markið hanns Gunnars Mána… þannig að í mínum augum var þetta alltaf bara sigur!!!

    Flottur pistill!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook