FC Bumbi vs Brostnir Draumar
FC Bumbi tók á móti Brostnum Draumum í nálægt úrslitum bikarkeppninnar. Fyrir leikinn var stuðullinn á að Bumbi mundi vinna þennan leik gríðalega góður og hvað þá eftir að heyrst hafði að Fabio byrjaði á bekknum, sem okkar leynivopn. En Bumbi byrjuðu gríðalega vel og áttu Draumórarnir í stökustu vandræðum með að komast í gott færi. Eftir að hafa átt hvert skotið framhjá náðu draumarnir að henda inn einu skíta marki. Þá héldu menn að öll vötn myndu renna til Ólafsfjarðar en svo var ekki því uppúr þurru ákvað Dreifarinn með aðeins nafn sitt að vopni að senda gullfallega sendingu á Josef the giant sem skallaði boltann auðveldlega í markið. Staðan 1-1 og þögn sló á mannskapinn.
Fyrir leik hafði FC Bumbi náð að múta dómaranum með kool-aid og prins póló. Kom það sér gríðalega vel því það mætti halda að Bumbi væri í einhverjum skotboltaleik eftir að hafa fengið boltann í hendina yfir tíu sinnum og það bara í fyrri hálfleik.
Eftir að Bumbi var kominn á blað var ekkert annað í stöðunni en að vinna þennan leik. Bumbi átti þá hvert færið á fætur öðru sem þjálfari draumanna kom engum vörnum við en vegna gríðalegrar þreytu í mannskapnum náðu Draumarnir að snúa taflinu sér í vil og skora 2 plebbaleg mörk. ALDREI SKAL ÞÓ AFSKRIFA BUMBANN og skoraði Skari gullfallegt mark frá 30 metrum eftir að dómarinn hafði tekið of stórann bita af prins pólóinu. Samt sem áður var kool-aidið og prins pólóið greinilega ekki nóg því hann ákvað að henda 2 gulum spjöldum á Bumbann eitt á Ljósmóðirina og hitt á Speedo. Hreint ótrúlegir dómar þrátt fyrir að tæklingin hjá Ljósmóðrinni mætti kalla manndráp af gáleysi. Úrslit leiksins liggja því fyrir og vann Bumbi alla flokka sem í boði voru nema sigur. Fc Bumbi að spila frábæran fótbolta og lítið hægt að kvarta. Svo má einnig bæta við að næsti alvöru leikur verður Í BEINNI.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


30 apr, 2010 klukkan 20:47
Þessa tapi verður skellt alfarið Á Rolla og Sazú!
Annars hinn ágætasti dómari og hundleiðinlegur mótherji!
03 maí, 2010 klukkan 19:02
Strákurinn getur ekki hætt að skora!
04 maí, 2010 klukkan 21:38
Ásgeir, þú varst bara fyrir.