FC Bumbi vs. ekki FH Old Girls
FC Bumbi og FH Old Girls mættust ekki á Leiknisvellinum í gær og er talið að það sé vegna miskilnings á kynþætti. En þess í stað redduðu FC Pump málunum og stukku til þegar þeim var boðinn annar æfingarleikur. Mæting FC Bumba í þennan leik var hreint ótrúleg og að Bahama hafi mætt segir allt sem segja þarf. Leikurinn byrjaði að krafti og skoraði FC Bumbi fyrsta markið þegar Speedo gaf stoðsendingu á Sasú sem setti boltann laglega í netið með góðu skoti. FC Pump voru aðeins með 1 varamann á meðan FC Bumbi með yfir 7 og kom það greinilega fram þegar leið á leikinn. FC Bumbi átti hvert skotið á fætur öðru og voru Pump menn heppnir að við erum lélegir að skjóta.
Ljósmóðirinn fór aftur í markið eftir samstuðið á móti Styrmi og átti ótrúlegan leik, sjónvarpsskutlurnar þar í aðalhlutverki. Staðan 1-4 í hálfleik og greinilegt að Bumbinn þurfti á hvatningu að halda. Hún greinlega skilaði sér því vörninn var ótrúleg í seinni hálfleik undir góðri stjórn Lebowski og Dreifarans. Sýndu Fabio og Alkinho sína venjulegu takta í framlínunni og skilaði það litlu. Sem sýnir enn og aftur að Alkinho á að halda sig í markinu.
FC Pump náðu að troða inn einu ljótu marki á síðustu sekúndu. Í þessum hokkýleik var ákveðið að taka þriðja hálfleikinn og FC Pump orðnir þreyttir. Strax í byrjun eftir nokkur mörk frá Pump, tóku Skari og Fritzl gott samspil upp völlinn þar sem Josef skoraði auðveldlega. Enginn með viti vissi hvernig leikurinn endaði, en er talið að hann hafi farið 2-7.
Vegna mikillar óvissu um úrslit var tekinn vítaspyrnukeppni sem FC Bumbi vann auðveldlega. Frábært comeback hjá Bumbanum sem sýndi ótrúlegan karakter.
Tækling kvöldsins: Lebowski og Bahama
Dýfa kvöldsins: Bóner
Fagmennska kvöldsins: Röð FC Bumba fyrir innáskiptingar.
Vonbrigði kvöldsins: að geta ekki afhent Nikka treyjuna sína
Úthlaup kvöldsins: Ljóðmóðirin eftir góða skógarferð í okkar hornspyrnu.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


17 mar, 2010 klukkan 17:20
Snilldar samantekt að vanda. Almennu frati hins vegar lýst yfir á hendur Fimleikafélags Hafnafjarðar sem sýnir enn og aftur að félagið í heild hefur enga burði til að spila fótbolta í hæðsta gæðaflokki og skal halda sig við viðvaningsboltann sem er við líði í gosdrykkjadeildinni.
kv. Fabio
17 mar, 2010 klukkan 19:27
HEY! ÉG ÁTTI STOÐSENDINGU TAKK FYRIR! Sem er kannski ekkert nýtt en í þetta skiptið var það stoðsending sem endaði með marki í RÉTT MARK! Vildi bara að það kæmi fram! hehe
17 mar, 2010 klukkan 19:41
Valli þú ert auðvita maður leiksins var þér ekki tilkynnt það á mánudaginn?
17 mar, 2010 klukkan 20:12
Já þú verður bara afsaka þetta Valli, mér fannst þetta bara of gott til að vera satt;)
17 mar, 2010 klukkan 21:39
Þú klúðraðir staðreyndinni að FC Bumbi skoraði fyrsta mark leiksins… sem ég náttúrulega leiðrétti áður en ég publishaði greininni…
Að öðru leyti flott samantekt…
PS. Vörnin var frábær í byrjun fyrri hálfleiks, þar til Lebowski og Norsarinn fóru útaf… Lebowski sýnir en og aftur hvað hann er magnað varnartröll!
17 mar, 2010 klukkan 22:33
Ég bið forláts, nefni ekki Norsarann í vörninni og Djöfullinn með stoðsendingu. Þetta mun ekki koma fyrir aftur. Ætla flugskalla vegg útaf þessu.
17 mar, 2010 klukkan 22:42
Staðan náttúrulega 1 – 0 þar til við förum útaf… svo vorum við aldrei á sama tíma inná aftur í leiknum og því fór sem fór… 2 – 7 … ÉG bið forláts!
18 mar, 2010 klukkan 09:25
Stórskemmtileg lesning um stórskemmtilegann leik.