könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

FC Bumbi vs eyjafjallajökull

FC Bumbi tók á móti Eyjafjallajökli á ótrúlegu fimmtudagskvöldi þar sem bjórinn flæddi upp um alla veggi. Sumir Bumba menn a.k.a DownUnder mættu hressari enn aðrir þeas menn létu kné fylgja kviði og mættu með his fasha eða öðru nafni Hamarinn eins og hann er kallaður. Bumbi tók vel á móti honum og þá sérstaklega String-Emil sem skellti á hann forseta vorum og þar fylgdi góður Magnús með í kaupæti. Eitthvað voru menn illa að sér komnir í maganum eftir að Fritzl hafði verið að standa í því pranga uppá Bumbann lakkrís og jólapappír. Láu því nokkrir óvígir fyrir leik með pípandi rassgat skeinandi sér á gæðajólapappír.

Byrjuðu því Bumbi einum færri en það var líka allt í lagi því partýið var á varamannabekknum þar sannkallað pylsupartý fór fram og Ljósmóðirin þar fremst í flokki með sína sívinsælu þyrlu. En til að segja eitthvað frá þessum annars ágæta leik þá komst Bumbi yfir snemma leiks eftir einfalt kerfi sem kallast „Hangikjets strokkunin“ og byggist uppá því markmaður gefur á kantinn hann gefur hann inní og sóknarmaður stangar boltann í markið. Þetta virkaði fullkomnlega þegar Fritzl slengdi hangikjetinu í boltann og staðan orðin 1-0 fyrir Bumba og ekki enn komið neitt gult spjald í leikinn.

Var þá komið einni mögnuðustu sókn feðga síðan Gudjonsen kom inná fyrir föður sinn í leik gegn Eistum hér um árið en DownUnder átti núna sendingu upp völlin á Hamarinn sem einfaldlega tók það uppá sitt einsdæmi að skjóta með bilmíngs skoti beint uppí stúku. Já sókn sem var töluvert betra að sjá en að lesa af prenti.
Foreyingurinn lét heldur ekki sitt eftir liggja og tók nokkur skot sem ég kýs að kalla liverpool en þetta video útskýrir kannski afhverju

Já eitthvað höfðu eyjafjallajökulsmenn barið niður slána og sparkað í stangirnar því inn vildi boltinn ekki og ákvað því libo dómarinn að skella sér í kaffi og enda þessu í hálfleik.
Hóký-Póký var tekið með mikilli sæmd og DownUnder var tolleraður að hætti húsins. Eitthvað fór það þó illa í manninn því fljótlega eftir að seinni hálfleikur byrjaði gerðist þetta:

Já maðurinn hreinlega skeit uppá bak og átti fótum sínum fjör að launa þegar kom að því að tefla við Páfan. Má segja að hann hafi ekki jafnað sig fyrr en hann komst á barinn og skellti í sér hóstameðalið Jakobsteiner. En aftur að leiknum því Alkinho vildi ekki vera lengur í marki og langaði að spreyta sig í vörninni það kom svo sannarlega í bakið á honum enda maðurinn með mjög slæmt bak þegar eyjafjallajökull lokaði á allar samgöngur hjá Bumbanum og komust í eina sókn og skoruðu eftir ljótan flugskalla. Staðan 1-1 og Bumbi vildi á barinn. Það var því sameiginlega ákvörðun á flauta þetta af.

Bumbi með enn eitt jafnteflið og er langbesta liðið bæði sókn og vörn enda ekki fengið á sig nema 8 mörk sem er met.

Út og Inn
Snigillinn

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook