FC Bumbi vs FC Gettó
FC Bumbi tók á FC Gettó í baráttunni um Breiðholtið. Þar sem undirritaður var ekki á staðnum og alltof ölvaður til að horfa á leikinn í beinni útsendingu hefur sú ákvörðun verið tekin eftir að hafa ráðfært mig við engan, að þessi umfjöllun fjalli um leikinn eins og hann ætti að hafa endað.
FC Bumbi hefur verið í miklu stuði síðustu daga með hvern sigurinn á eftir öðrum og það er lítið sem getur stoppað bumburnar nema kannski partý í dúfnahólum 10. Eftir að hafa komið hent upp myndavél, fána, blöðrum, stúku, bjór og lýsanda, gat leikurinn hafist. FC Bumbi byrjuðu gríðalega sterkir og voru ekki lengi að koma inn einu marki þegar Fritzl skoraði frábært sjálfsmark. Nú var hægt að hefja leikinn að alvöru enda Bumbi alltaf skorað eitt sjálfsmark í leik. Það var ekki lengi gert þegar operation Black Eagle var notuð og lýsir sér svona: Alkinho tók markspyrnu, gunnar valur fór úr að ofan, dómarinn sá þetta tan og fékk blackout, gunnar máni hrindir markmanninum og boltinn flýgur inn.
Staðan orðinn 1-1 og dómarinn rankar við sér. FC Bumbi ákáðu þá að taka hokkýskiptinu án þess að skipta neinum útaf heldur aðeins til að fá sér bjórsopa og virkaði það ótrúlega vel, eftir að hafa skorað 2 mörk á undir 2,5 mín. Staðan orðinn 3-1 og Gettó menn komnir með gúmmí ninja stjörnur í hönd. Dómarinn leiksins sá þetta athæfi og rak miðjumann Gettósins útaf með rautt spjald.
Samba fýlingur var kominn í menn og má segja að þetta hafi verið leikur bjórsins að fresskettinum. Umdeilt atvik átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks þegar leikmaður Gettósins lætur sig detta inní teig og dómarinn dæmir víti, hreint ótrúlegur dómur og skyldi enginn neitt í þessu. Var því ákveðið að hringja í Ljósmóðirina og tjekka hvað væri í gangi. Komst það þá á hreint að þetta hafði verið Ljósmóðirinn í anda sem hafði tæklað þarna leikmanninn fyrir ofan hné. Dómarinn sá sér ekki annað fært en að ræða þetta mál undir fjögur augu í myndsímtali sem endaði á að gult spjald fór á loft en hætt var við vítaspyrnuna.
Flautað var í hálfleik og Hókí Pókí tekið með klúru ívafi. Gerðist lítið í seinni hálfleik fyrir utan þegar vinirnir frá Færeyjum og Noregi hlupu inná völlinn aðeins klæddir í hlébarða g-strengi. Æstust áhorfendur gríðalega við þetta og sérstaklega Fabio sem byrjaði að nudda Sírópi yfir hár sitt og líkama, áhorfenda met klárlega slegið á Ustream. Einnig náði Fritzl að bæta fyrir sjálfmarkið með áhugaverðu marki eftir basl í teignum. Flautaði dómarinn síðan til leiksloka og sigur hjá FC Bumbi staðreynd.
Út og Inn
Snigilinn
Leikurinn endaði 5-0 en er það algjört aukaatriði þar sem bjór bumbi bolti kemur alltaf á undan úrslitum


09 jún, 2010 klukkan 19:18
þetta er besta lýsing sem ég hef lesið !!!! HAHAHAHAH
09 jún, 2010 klukkan 19:52
Vel ritað, herra!
10 jún, 2010 klukkan 09:16
Glæsilegt! Þurfum að æfa fleiri operation eins og Black Eagle.
21 júl, 2010 klukkan 00:05
GG