FC Bumbi vs kf mjöðm(fc hip)
Umfjöllun á ensku og íslensku í þetta skiptið en þó mjög ólíkar af mörgum ástæðum.
FC Bumbi faced FC Hip on a beautiful Tuesday evening. FC Bumbi had posted an invitation to play with them on the awsome site http://invitations.inspiredbyiceland.com/invitation/69003 or as everybody knows it as Inspired by Iceland. Bumbi got a few respones but only one showed up. Her name is Vannessa and she is crazy good at football. Because of this invitation a full camera crew with people making a documentary about us, mostly because FC Bumbi is the most entertaining team in Iceland. But lets return to the game, Bumbi drank a couple of beers before the game as their warm-up and it certainly paid off. The referee got the game under way and Bumbi started right away in a full time attack. Vanessa as the newest member of Bumbi fitted like a glove to an ass to the team. She played on the right wing and fooled the defence of fc hip over and over again.
Unfortunately Bumbi scored an outrageously amazing own goal and where behind 1-0 as the referee blew his whistle for halftime. Bumbi started a Hoky Poky and put the left foot in and everybody joined. As the second half started Bumbi was determine to win this game. After only 3 minutes and 55 seconds they did as Speedo made a fantastic goal after a crazy good assist from little red riding hood, but NOOOO their was a hole in the goal and the referee didin´t notice. So no goal but we got it all on tape and will show it on Bumbi next annual party were trophies like the „Drogba trophie“ and „drinking champion“ are given away. So the score is still 1-0 but Bumbi is not called the beerbellys for nothing and only a couple of minutes later after a continuous attack Bumbi scored a crazy goal when Vanessa gave an assist to Foreyingurinn who then kicked the ball to Lebowski and he made a bicycle kick SLAM DUNK the ball was licking the back of the net. 1-1 and the game almost over. Bumbi was still celebrating their goal when fc hip rushed to attack and unfortunatly scored a goal while Bumbi was still in a big pile
The score 2-1 and referee blew his whistle. Game over but a good game by Bumbi aspecially from Vanessa who was made the drinking champion on the bar called Búálfurinn later that night.
Þá er það íslenska þýðingin á þessu sem að öllu leyti er ekkert lík þeirri ensku.
FC Bumbi tók á móti kf mjöðm á gullfallegu fimmtudagskvöldi þar sem menn voru vel hólkaðir eftir viku pásu frá bolta en þó ekki drykkju. FC Bumbi bauð útlendingum að skella sér í þessa skemmtun með sér og heldur betur rættist úr því þegar einn útlendingur mætti að nafni Vanessa og kemur frá Ameríkunni. Ekki nóg með það heldur mætti mikill meistari að nafni Jean Claude og var að taka upp heimildarmynd um skemmtilegasta fólk landsins og er Bumbi að sjálfsögðu þar á meðal. Voru því viðtöl og drykkja tekin upp áður en leikur byrjaði.
Dómarinn var þekktur meðal Bumba manna og kunni vel að meta myndavélarnar þegar hann flautaði til leiks. Bumbi byrjaði leikinn af krafti enda var drykkja í hámarki fyrir leik, Bumbi var ekki lengi að skella sér í sókn þegar Lebowski gaf á Fritzl sem gaf á Vanessu sem gaf á String-Emil sem var reyndar uppá Sólheimajökli en hann var ekki lengi að koma boltanum á Norsarann sem gaf þessa líka gullfallegu sendingu beint á Fabio sem var því miður of upptekin að sýna fólki nýja Ipadinn sinn og lét því boltann framhjá sér fara eins og Alkinho ætti að gera með jólabjórinn miðað við síðasta fyllerí.
Bumbi hafði virkilega gaman af myndavélunum og ákvað því að skora ekki ljótt mark heldur tók skósérfræðingurinn okkar uppá því að skjóta af 40 metra færi beint í Rauðhettu sem við það breytti stefnu og lá í markinu. Staðan orðinn 1-0 fyrir Bumba og Djöfullinn ekki búin að skora sjálfsmark. Bumbi var að rúlla upp þessum leik og átti hvert skotið á fætur öðru, Vanessa náði einu góðu skoti á markið og fékk svaklega tolleringu af leikmönnum Bumba beint á eftir en það reyndist banabiti fyrir alla sem voru með markmann Bumba í fantasy þegar clean sheet bonusinn hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar mjöðmin spretti fram völlinn sex á móti Alkinho. Eftir nokkrar góðar vörslur skoruðu þeir og staðan orðin 1-1. Flautaði því dómarinn til hálfleiks.
Eitt svaðalegasta Hóký-Póký var tekið í hálfleik síðan Gunnar í Krossinum var í Kolaportinu um síðustu helgi. Jean Claude var virkilega ánægður með þetta en ákvað þó að skella sér á barinn þegar síðari hálfleikurinn byrjaði. Skari ákvað að sýna klærnar strax í byrjun og demba sér í eina tæklingu ala Lucas Leiva þegar mjöðmin var næstum því komin í gegn uppskar hann gult spjald fyrir það en það algjört aukaatriði því Bumbi vildi stigið áður en á barin var farið. Dómarinn ákvað því að flauta þetta bara snemma af enda myndatökumaðurinn löngu farinn. Bumbi með stigið í höfn en þá tók við grimmt session á barnum þar sem jólabjórinn fór jafnfljót oní maga og aftur út um munninn þegar á klósettið var komið.
Út og Inn
Snigillinn




14 nóv, 2011 klukkan 01:10
Þvílík skrif hafa sjaldan sést, vil ég meina að fáir séu jafn góðir pennar og þú.
Heyrst hefur að lagið Lucy in th Sky with Diamonds sé ekki um LSD heldur fjalli það um Tómas Tandra
Kv Jói