FC Bumbi vs Grettir (1-?) Sigur í vító!
FC Bumbi tók á móti Gretti á Leiknisvellinum í blíðskapar veðri. Var hitað vel upp með skotæfingum og „homma“ en er þar skemmst að minnast fallegs búnings sem Ísbjörninn hafði fengið að láni frá Nikkabar(R.I.P.). Leikurinn var síðan flautaður í gang og voru Grettis menn ekki lengi að skora eftir frábær tilþrif hjá Ljósmóðirinni sem var síðan skipt út eftir að hafa fengið á sig alltof mörg mörk. En þessi skipting breytti engu því í stað þess að leyfa Gretti að skora að vild í markinu ákvað Ljósmóðirin að gefa bara stoðsendingar á þá í tíma og ótíma sem enduðu með nokkrum mörkum.
Hreint frábær fótbolti sem Bumbi var að spila og sá ekki fyrir endann á. Kári vinur okkar allra var í einhverri fýlu eftir bíltúrinn sem ég fór með honum í gær og lék Bumba menn grátt allan leikinn. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu Grettis menn skorað nokkur mörk en kom það flatt uppá FC Bumba því Stjórnin hafði gefið það út að hér væri um að ræða vanhæfa drykkjumenn sem kæmu með 2 kassa af bjór til að gefa með sér og gætu lítið sem ekkert í fótbolta.
En annað kom á daginn og aðallega af því FC Bumbi hafði ákveðið að skilja besta boltann sinn eftir heima og því fór sem fór. Reyndar má segja frá því að Fritzl skoraði fallegt mark af 31,4 metra færi þegar markmaðurinn ákvað að fara í lautarferð en færin sem Bumbi fékk voru ekki af lakara taginu en nýtingin var ekki sú besta og skal ég ekki nefna nein nöfn en ég er allavegana með hann bein stífann í austuríska kjallaranum mínum.
Reyndar var þessi leikur algjört aukaatriði því Bumbi var þarna mættur aðalega til að hakka þessa Smjattpatta í vítaspyrnukeppni. Var það ekki lengi gert þó svo að Bóner hafi tekið sitt venjulega klúður og Fritzl hafi reynt að vera töff. Alkinho tók markið af harðfylgni og bakaði þá við 200° gráður í þessar 10 mínútur sem keppnin stóð yfir. Hressandi leikur á enda þar sem mörkin voru algjört aukaatriði þar til í lokinn og ótrúlegt að Bumbi hafi ekki unnið þessa vítaspyrnukeppni stærra.
Inn og Út
Snigillinn(Speedo)


06 apr, 2010 klukkan 14:49
Það er nú spurning hvort það fáist ekki gott verð fyrir Ljósmóðirina.. Stoðsendingavél sem gagnast okkur ekki rassgat!
Annars er líklega best að setja harpex á skóna hjá Bóner því spyrnurnar eru allar 800 metrum yfir markið…
07 apr, 2010 klukkan 09:23
þetta var auðvelt þessir pappakassar kunnu ekkert að skjóta bolta