FC Bumbi vs Hvatberar
FC Bumbi tók á móti Hvatberum í Sumardeildinni síðastliðinn fimmtudag. Mikil eftirvænting hafði verið fyrir leiknum aðalega vegna komu hins mikla meistara Magga Mix sem ætlaði að lýsa leiknum í beinni útsendingu. Upphitun fyrir leikinn var gríðarlega góð miðað við aðstæður og mikið hungur komið í mannskapinn sem ætlaði að vinna.
Lítil seinkun var á leiknum og hafði það greinilega einhver áhrif því Hvatberar náðu að skora 2 mörk snemma leiks,eitt þeirra sameiginlegt sjálfsmark Alkinho og Dreifarans. En þá setti Alkinho upp húfuna og Bumbi fékk horn sem Sasú tók og gaf þessa skemmtilegu sendingu á Bóner sem skoraði með flugskalla. Staðan orðin 2-1 og áhorfendur trylltust, en talið er að þeir hafi verið yfir 500 þúsund. Eftir að hafa verið vakandi síðustu 46 klukkutíma sofnaði bjórvömbin aðeins á verðinum og náðu Hvatberar að skora sitt þriðja mark.
En hvað getur maður sagt annað en að FC Bumbi er besta lið á landinu í dag. Fljótlega eftir þetta mark komst FC Bumbi í sókn og eftir sendingu frá Sasú náði Fritzl að skora svokallað showoff mark en samt sem áður var það gott og gilt. Staðan 3-2 og Maggi Mix byrjaður að dansa. Nú var komið gríðalegt grimmd í menn til að jafna og gerðist það þegar Skari tók hjólhestaspyrnu þar sem boltinn skall í hendi á Vatnsbera og víti dæmt. Miklar vangaveltur höfðu verið um hvort Mixarinn fengi að taka spyrnuna en eftir að hafa farið með málið alla leið í hæstarétt var svo ákveðið að Fñorigngur fengi að taka vítið, sem hann skoraði næstum því örugglega úr. Staðan 3-3 og áhorfendur orðnir 3420 á live streaminu.
Spennan fyrir því að fá sér ölsopa eftir leik var greinilega alltof mikil því Hvatberar skoruðu 2 mörk undir lokin þar sem Galdur var greinilega mikið ölvaður þrátt fyrir að vera ekki á staðnum. Flautaði dómarinn síðan til leiksloka og staðfest að Maggi Mix átti stórleik og var valinn maður leiksins.
Inn og Út
Snigillinn(Speedo)


24 maí, 2010 klukkan 15:50
Ótrúlegur leikur, sem var margfalt skemmtilegri en úrslit meistaradeildar og augljóst að Bumbinn myndi rústa Inter Munchen í hvaða keppni sem er!
26 maí, 2010 klukkan 21:45
eg tok thatt svona soldi`fjarverandi .
bjor bjor jbjor
27 maí, 2010 klukkan 10:10
Sammála Fabio
27 maí, 2010 klukkan 15:04
baddi er fugglurr….