könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Føroyingurin: Hér er fjandi góð umfjöllin á ferðinni, mig minnti þó að ég hefði skorða tvö ef ekki þrjú mörk í þessum...

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

FC Bumbi vs landsliðið

FC Bumbi tók á móti landsliðinu á go-kartlegum miðvikudegi. Eftir að hafa losnað frá íslenska landsliðinu var Óli Jó mættur með gamlar kempur eins og Guðna Bergs,Scott Ramsey og meiddar stjörnur eins og Kolbein sigþórs og gudjonsen. Þeir ákváðu að hita upp annað en bumbinn sem sat sultuslakur og sullaði í sig bjór einsog það væri miðvikudagur.
Áður en að dómarinn flautaði leikinn á með flautu sem var víst keypt í Toys R Us var staðan 0-0 en það átti svo sannarlega eftir að breytast. Bumbi komust mjög fljótlega í góða sókn þar sem Rauðhetta keyrði upp kantinn en lendir svo í því að vera skriðtæklaður illa klárlega innan teigs en dómarinn sá ekkert því Dreifarinn var enn að spjalla við hann um nýjustu KSÍ dómararáðstefnuna. Hrikalega gróft brot en Rauðhetta kallar ekki allt ömmu sína enda með bíl sem profile mynd á facebook.

Image and video hosting by TinyPic

Landsliðið er þó með mann að nafni Ríkharður Daðason og var hann ekki lengi að setja eitt skallamark yfir hinn kyngimagnaða markvörð Bumbans. Staðan 0-1 og String-Emil kominn á strenginn.
Skósölumaður íslands lék á hægri kantinum hjá Bumba og má segja að varnarmenn landsliðsins hafi gefið honum góðan afslátt því hann lék þá grátt og það skilaði sér þegar inní sending hans rataði beint á engann heldur lá bara í netinu. Svipaði þetta mjög til marks Grétar Rafns sem var á varamannabekknum hjá landsliðinu allan leikinn.

Staðan orðinn 1-1 og Óli Jó kominn í neftóbakið. Bumbi enn ósigraður og allt í járnum. Ótrúlegur hlutur gerðist rétt fyrir hálfleik en eins og flestir vita þá eru Rauðhetta og Fritzl þekktar persónur úr barnabókunum og það sama má segja á fótboltavellinum í gær þegar Rauðhetta tekur langt innkast Fritzl stekkur upp en þó ekki nógu hátt því Ljósmóðirinn kemur eins og skrattinn úr sauðalæknum og skallar boltann. Fyrsti skallabolti sem Fritzl tapar síðan Bumbi keppti við Úrvalslið Ólafsfjarðar í Bandý hér um árið.
Dómarinn flautaði til hálfleiks og blátt eista ljósmóðurinnar sett inn. Seinni hálfleikurinn byrjaði af krafti og voru Bumbamenn ekki lengi að koma sér í færi þegar Djöfullinn skoraði næstum því sjálfsmark annan leikinn í röð en hann átti þó eftir að bæta það upp á barnum eftir leik með mikilli drykkju.

Landsliðið skoraði mark sem var rangstæða en þar sem það vantaði kúluna í nýja flautu dómarans náði hann ekki að dæma rangstöðu og þar við sat. Staðan 2-1 en þó ekki öll nótt úti enn þó bjórinn væri að klárast. Það var því lítið annað hægt en flauta þetta af og skella sér beint á barinn. Alkinho tók þó nokkrar aukaspyrnuræfingar áður en hann fór inní klefa og var því lítið um markvörslu þegar leikmenn Bumba löbbuðu útaf og þar náði landsliðið að setja eitt mark í viðbót. Þriðji leikur Bumbans búinn og einhverjir leikmenn ennþá ósigraðir.

Maður leiksins: Bahama fyrir góða innkomu
Tækling leiksins: Dreifarinn þegar hann tæklaði rafmagnskassa og fékk þetta svakalega stuð
Fyrirliði leiksins: Lebowski fyrir að taka með sér white russian á hliðarlínuna
Aukaspyrna leiksins: Alkinho
Vítaspyrna leiksins: Føroyingurin
Klettur varnarinnar leiksins: Skari
Öfuguggi leiksins: String-Emil
Bjórleysi leiksins: Fritzl
Refur leiksins: Úlfurinn

Inn og Út
Snigillinn

1 Ummæli

  1. Snilldar grein!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook