könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

FC Bumbi vs Ljónsungarnir

Fyrsti leikur FC Bumba í Sumardeildinni var gegn Ljónsungunum. Fyrir leik hittust allir á Álfinum og fengu sér öl og var rammaður FC Bumba búningur einnig hengdur uppá vegg. Kom þetta upp gríðalegri stemmingu í hópnum og ekki nóg með það heldur voru Bahama og Fabio búnir að henda upp græjum fyrir tugi milljóna til að allir á veraldarvefnum gætu séð þennan stórleik.

FC Bumbi byrjuðu gríðarlega sterkir og sáu Ljónsungarnir aldrei til sólar. Bumbamenn áttu hvert færið á fætur öðru og má segja að bumbinn hafi verið að kenna hænunnni. Ljónsungar áttu samt sína spretti en kom ekkert að viti úr þeim. Lýsandi leiksins sem ég kýs að kalla Sum Ting Wong og kemur frá Kazakstan átti stórleik á mikrófóninum og sá um að halda stemmingunni á áhorfendapöllunum uppi. Dómarinn ákvað síðan að flauta til hálfleiks aðalega til að leyfa ljónsungunum að snerta boltann en Bumbi hafði náð að halda boltanum 94,5% af hálfleiknum vegna gríðalega góðrar bjórdrykkju.

Eftir gott hókí pókí komu Bumbamenn gríðarlega ákveðnir í seinni hálfleikinn enda er það þinglýst að FC Bumbi er alltaf betri í þeim seinni. Á þessum tímapunkti voru ljónsungarnir orðnir litlir reiðir kettlingar og tækluðu mann og litla stelpu. En þá var nóg komið Bumbi fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, Dreifarinn hamrar á markið en markmaðurinn ver. En þá var Galdur á réttum maður á réttum stað og fylgir skemmtilega eftir. Staðan 1-0 fyrir FC Bumba og gríðarlegt álag komið á justin.tv.

Áfram hélt leikurinn og héldu ungarnir ennþá áfram að brjóta á sér en allt þetta var tekið upp og sent til leikmannabannanefndarinnar og verður farið yfir þetta í næstu viku. Þar sem gríðarlega góð mæting hafði verið á leikinn var lítið um að lungu væru að falla saman eða gömull öklameiðsli væri að brjótast aftur fram. Flautað var síðan til leiksloka og sigur í fyrsta leik sumardeildarinnar staðreynd. Gríðaleg fagnaðarlæti brutust út og munu þau halda áfram frameftir sumri.

Út og Inn
Snigillinn(Speedo)

8 Ummæli

  1. Stórkostlegur leikur að vanda. Hvet alla sem ekki sáu leikinn að horfa á upptökurnar sem finna má á justin.tv/fcbumbi

  2. Gott að byrja deildina á þessu :)

  3. Ég er að fýla þetta í botn, nú er spurning hvort Alkinho nái að halda hreinu í öllum leikjum sumardeildarinnar fyrst hann fékk á sig mörk í öllum leikjum vetrardeildarinnar.

  4. og ég vil taka það fram að ég hélt hreinu!!! :D :D:D:

  5. Frábær byrjun á þessu tímabili… væri gaman ef að upptökurnar voru teknar upp á teip, að klippa saman í highlights úr leiknum…

  6. engin húfa = ekkert mark?

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook