FC Bumbi vs Orkan-Bensínverðið barið niður
FC Bumbi tók á móti KF Orkan/Shell á Leiknisvellinum en Orkan hafði fengið lánaða nokkra Grettismenn vegna mannskorts. FC Bumbi byrjuðu ótrúlega sterkir og áttu hvert færið á fætur öðru og hreint ótrúlegt að boltinn hafi ekki drullað sér inn. En ekki leið að löngu þar til skipaður fyrirliði Bumba í þessum leik Speedo tók uppá sitt einsdæmi að stela boltanum af varnarmanni Orkunnar og skora óverjandi fyrir markmanninn. Bumbi kominn í 1-0 mjög verðskuldað.
Josef Fritzl ákvað að kíkja á einn leik með Bumbanum og var ekki lengi að setja sitt mark á leikinn með öruggu skoti upp í þaknetið. Staðan orðinn 2-0 and the Bumbimobile kominn á stað. Alkinho hélt markinu lokuðu allan fyrri hálfleikinn en þurfti lítið gera vegna gríðarlega sterkrar varnar fyrir framan sig. Tekinn var hálfleikur þar sem menn fengu að pústa en mæting var gríðalega slöpp hjá Bumbanum en batnaði þegar leið á leikinn. Seinni hálfleikur einkenndist af algjörri einstefnu hjá Bumbamönnum og áttu þreyttir Orkumenn í gríðalegum vandræðum með spræka sóknarmenn okkar.
Galdur kom gríðalega sterkur inn í seinni hálfleikinn eftir að hafa verið á ráðstefnu óvirkra töframanna í leikhléi og skoraði frábært mark með viðstöðulausu skoti. Staðan 3-0 og Lebowski farinn úr buxunum. En til að hafa einhverja spennu í þessu var ákveðið að leyfa Orkunni að skora 2 mörk og því allt í járnum. Fritzl braut þá odd á oflæti sínu og skoraði snyrtilegt mark eftir sendingu frá kanti. FC Bumbi gjörsamlega að borða þessa dælumenn í morgunmat.
Fabio fékk nokkur færi sem hann snyrtilega nýtti ekki, en eins og segir í kvæðinu“ dónt heid þe pleier heid þe geim“. Kúabjallan fór síðan á loft og leikurinn á enda. 4-2 sigur hjá Bumbamönnum staðreynd og vill FC Bumbi þakka Orkunni fyrir skemmtilegan og prúðmannlega leikinn fótboltaleik. Ætla ég að enda þetta á að þakka Kindinni fyrir öll þau frábæru færi sem hann klúðraði í leiknum, ég veit ekki hvar við værum án þín.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


13 apr, 2010 klukkan 20:12
Sælir drengir
Alltaf gaman af þessum umfjöllunum, er núna í útlandinu að dansa til að gleyma.
Þið eruð snillingar
one love
dabbi kóngur
13 apr, 2010 klukkan 20:50
Alltaf gaman að heyra í aðdáendum Davíð!
Skemmtilegur leikur, skemmtilegur mótherji. Nennið þið svo að hætta að gefa á vinstri fótinn… ég er ekki þroskaheftur
14 apr, 2010 klukkan 09:39
Ahh hvað það var gott að komast úr þessum buxur.
14 apr, 2010 klukkan 12:47
ég elska ykkur