könnun
  • Væriru til í að hanna þinn eigin bjór?

    View Results

    Loading ... Loading ...
auglysingabordi4
Twitter

Æfingatími er 20:30 - 21:30 á mánudögum á Leiknisvelli.

Fimmtudagsæfingar þegar það er ekki leikvika, kl 19:00 á tennisvellinum í Garðabæ

Haldið er utan um allar æfingar með Event-um á Facebook

Twitter

Lebowski aka Annie Mist aka huggy the bear: Hörkuleikur í upphafi sumars!

bumbatal
  • 8. jan - Elías "Dreifarinn"
  • 18. jan - Árný "P. Beckham"
  • 28. feb - Fúsi "Alkinho"
  • 1. mars - Afmæli Bjórsins
  • 13. mars - Tommi "Speedo"
  • 14. mars - Baldur "Galdur"
  • 31. mars - Natan "Bóner"
  • 2. mai - Birkir "Norsarinn"
  • 21. mai - Siggi "Bahama"
  • 28. mai - Bragi "Fabio"
  • 9. jún - Heimir "Lebowski"
  • 15. júlí - Gunnar "Kindin"
  • 9. ágú - Tor "Handegg"
  • 27. ágú - Gunnar "Mooner"
  • 20. okt - Jói "Føroyingurinn"
  • 20. okt - Jakob "Skari"
  • 25. okt - Hörður "Skátastelpa"
  • 14. nóv - Pétur "Ljósmóðir"
  • 9. des - Hemmi Gunn
  • 19. des - Ásgeir "Fritzl"
  • 28. des - Hans "Partý-Hans"

FC Bumbi vs Strákafélagið Styrmir 2-0

FC Bumbi mætti Strákafélaginu Styrmi síðasta sunnudag og hafði eftirvæntingin verið gríðaleg. Það gríðaleg að Færeyingurinn ákvað að taka mjög vel eftir hvenær leikurinn væri spilaður. Sem endaði á því að allir voru ræstir upp á sunnudagsmorgni kl 10 til að spila fótbolta en eins allir heilvitamenn gera sér kannski grein fyrir þá spilar enginn fótbolta svo snemma enda var leikurinn kl 10 um kvöldið. Spennustigið var það rafmagnað að ákveðið var að fara skyldi á barinn fyrir leik og drekka mjöður. Haldið var síðan í fífuna þar sem upphitun var eins og venjulega engin nema bjórdrykkja.

fotbolta snilld
FC Bumbi byrjaði leikinn með miklum látum og áttu Styrmismenn í mesta basli með sterka varnarmenn okkar. FC Bumbi sótti látlaust í fyrri hálfleik og uppskáru mark eftir inní sendingu frá kanti og skalla frá Fritzl á hinn annars vanhæfa Speedo sem skoraði örugglega og staðan orðinn 0-1 fyrir Bumbanum í hálfleik. Hálfleiksskemmtun kvöldsins var að venju Hókí Pókí sem hinn nýrnaveiki og krullhærði læknir stjórnaði að stakri snilld. Enn og aftur byrjuðu FC Bumbi að miklum krafti og skipti það engu þótt Styrmismenn höfðu skipt nýju liði inná, þeir áttu ekkert í Bumbann. Skilaði það sér um miðjan seinni hálfleikinn þegar fyrirliðinn ákvað að hætta í markinu og skella sér á miðjuna sem endaði síðan í frábærri stoðsendingu á Galdradrenginn sem þrumaði tuðrunni fyrir utan teig beint í markið og staðan orðinn 0-2 fyrir FC Bumbi. Undir lok leiksins var komið að Ljósmóðurinni sem ákvað að skella sér í markið í stað drykkjuhrútsins, eins og venjulega þá fer hún í alla bolta á fullu og sást það fullkomlega þegar úthlaup hennar endaði á hörðu samstuði við gagnkynhneigðan Styrmismann og rotast við það, ældi blóði og hélt það væri miðvikudagur. Voru allir limir Styrmis vel kunnir skyndihjálp og björguðu honum frá meiri heilaskaða. Fór ljóðmóðirinn uppá sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hennar. Sögusagnir hafa verið uppi um að hún hafi gert sér upp meiðslin til að geta káfað á Styrmismönnum og hjúkkunum en einnig til að sjá hvernig tekið sé á móti barni því henni hefur ekki verið hleypt inná sjúkrahús síðan ´97 eftir atvikið fræga með vélsöginni. Þó er talið líklegast að hún hafi gert þetta til að stækka aðdáendahóp sinn á fésbókinni. Áhugaverður endir á annars frábærum leik.

Mörkin úr leiknum:

kv. Snigillinn (Speedo)

1 Ummæli

  1. Ótrúleg gabbhreyfing!

Þín Skoðun


Um okkur

FC Bumbi er sjálfstætt fótboltalið sem hefur þrennt að leiðarljósi: Bjór - Bumbi - Bolti

FC Bumbi logo

Lesa Meira >>

a Dofinni

Úrslit!

Hvatberar og FC Gettó mætast í úrslitum Carlsbergdeildar sumarsins og hefjast leikar kl. 17:00 hér í beinni á www.fcbumbi.com/live


Frekari upplýsingar >>
FC Bumbi on Facebook