Leikurinn gegn Slökkviliðinu
FC Bumbi lék gegn Slökkviliðinu upp á líf og dauða um hver myndi hreppa hið eftirsótta 11.sæti. Bæði lið jöfn að stigum og nægði jafntefli ekki. Fyrir leik opinberaði Lebowski gullfallegan fána merktan FC Bumba. Reif þetta upp alla stemminguna í hópnum og komu allir froðufellandi inná völlinn með sigur sem sitt eina markmið. Byrjaði FC Bumbi leikinn að gríðalegum krafti og átti yfir tuttugu færi í fyrri hálfleik sem öll fóru samt forgörðum. Hinum megin á vellinum hélt Alkinho markinu hreinu. Staðan 0-0 í hálfleik og ekkert annað í stöðunni en að HAKKA bara seinni hálfleikinn.
Það hefur sýnt sig að FC Bumbi er alltaf töluvert betri í seinni hálfleik og kom það strax í ljós að menn ætluðu sér sigur. En smá einbeitingarleysi kom á hópinn þegar Slökkviliðsmenn skoruðu eftir að varnarmenn okkar sáust taka Niggaflip inní miðjum teig með Alkinho í bullandi bóner. FC Bumbi sá þetta sem víti til varnaðar og ætlar að leyfa Galdramanninum að sjá um þetta alfarið í framtíðinni. Það var varla búið að taka miðju þegar Fritzl gefur fallega sendingu á Mooner sem skorar auðveldlega. Staðan 1-1 og allt í járnum. Slökkviliðsmenn orðnir þreyttir og var Sasú ekki lengi að skora skemmtilegt mark eftir sendingu frá Skara. FC Bumbi komnir yfir og ætlaði þakið gjörsamlega að rifna af Leiknisvellinum eftir gríðaleg fagnaðarlæti áhorfenda sem taldir eru hafa verið 911 talsins. Innsiglaði svo Kindin sigurinn með öruggu skoti,3-1. Undir lokinn sýndi Fabio slökkviliðsmönnum hvar Bumbi kaupir ölið og sýndi frumlega takta að vanda. Flautað var til leiksloka og 11.sætið staðreynd. Hetjuleg barátta okkar manna í einu ótrúlegasta comebacki sem sést hefur sunnan Fimmvörðuhálsar. Vetrardeildin á enda og tekur nú við sumardeildinn sem verður tekin í þurrt rassgatið.
Skegg kvöldsins: Ljósmóðirinn
Skinka kvöldsins: Vinkonur Kindarinnar á hliðarlínunni
Mæting kvöldsins: Múfasa
Marktækifæri kvöldsins: Fritzl
Fagmennska kvöldsins: Norsarinn fyrir víndrykkju eftir leik
Papparazzi kvöldsins: Kvenlega hliðin af Lebowski
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


26 mar, 2010 klukkan 02:33
11. sætið er evrópusæti fyrir ykkur sem ekki vitið…
djö var þetta nú sætur sigur…
en verst var að þurfa að drekka refsidrykkin…
26 mar, 2010 klukkan 03:41
Við kveiktum í öllu sem var með kveikiþráð og tveggja marka sigur aðeins lágmarkið!
26 mar, 2010 klukkan 10:43
Ég vil meina að Eyjan okkar góða hafi verið 8. maður Bumbi í þessum leik þar sem hún bæði sá til þess að Slökkuvliðsmenn voru fáliðaðir og þjakaðir af ótta sökum eldgossisns í Eyjafjallajökli sem og Fimmvörðuhálsi. Ég klappa fyrir Íslandi og öðrum Bumbi mönnum
26 mar, 2010 klukkan 12:09
Það sást einnig á þeim að snarpir og hnitmiðaðir brandarar formannsins góða af hliðarlínunni kom þeim í opna skjöldu…aldrei heyrt annað eins áður
26 mar, 2010 klukkan 12:11
Við erum reyndar meira í norðvestur af fimmvörðuhálsi en það er annað mál hehe..
Frábær leikur og gríííðarleg stemming!
Þakka fyrir mig