Miroslav vs. Bumbi – Episode 2
FC Bumbi tók boði FC Miroslav um æfingarleik. Mæting var frekar slöpp og vorum við mættir 8 sem endaði í 7 eftir að Gaylord hafði náð að eyðileggja á sér ökklann og það ekki í fyrsta skipti. Var spilaður skemmtilegur fótbolti allan tímann og létu færin ekki á sér standa.
Skemmst er þess að minnast að Speedo skoraði öll mikilvægustu mörkin í þessum leik, tvö í mark mótherja og eitt óverjandi fyrir Fabio í markinu. Miroslav áttu í litlum vandræðum með að skora nokkur mörk en voru þau flest þegar FC Bumbi tók markmannskipti. Þol FC Bumba manna var ekki mikið og skrifast það á bjórskort sem varð í byrjun seinni hálfleiks.
Var ákveðið að taka vítaspyrnukeppni vegna gríðalegrar óvissu um úrslit, Byrjaði hún gríðalega vel þar sem örugg víti voru í fyrirrúmi.Þar til arsenal maður sem Bumbi hafði fengið í láni frá Mosfellsbæ klúðraði, en kom það ekki að sök því Skari varði frábærlega þar á eftir. En var þá komið að einkasýningu hjá Bónernum en hann hefur ekki nýtt víti síðan ´95 þegar stelpa sem var 3 árum yngri en hann var í markinu. Bónerinn kom sá og sigraði með frábæru víti sem markmaður Miroslav varði auðveldlega og ósigur staðreynd. Bumbamenn vildu samt meina að þeir hafi unnið þennan leik 2-1 og varð Miroslav bara að sætta sig við það.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


26 mar, 2010 klukkan 02:31
satt og rétt…
bail kvöldsins: tommi og jói
26 mar, 2010 klukkan 03:44
Frábær skrifa að vanda og ekki stakt orð lygi. Dykkjulæti kvöldsins hljóta hins vegar Bóner, Fabio og Fluffy fyrir að gera allt vitlaust á Ölver…
26 mar, 2010 klukkan 08:43
mjög vel skrifað!
djöfull var maður sáttur með leikinn…klárlega besti leikur sem við höfum spilað!
26 mar, 2010 klukkan 10:34
Ég vil nú meina að Bail kvöldsins sé á öðrum meðlimum klúbbsins fyrir að koma ekki á leikinn
26 mar, 2010 klukkan 12:07
Klárlega, Svo er spurning hvort Færeyska fegurðardísin taki aðeins í Bóner og kenni honum vítaspyrnutækni…