Urban Assault vs. FC Bumbi (4-6)
FC Bumbi tók æfingarleik við Urban Assault í því þægilega umhverfi sem Kórinn hefur uppá að bjóða. Bumbi komu gríðalega ákveðnir til leiks og voru ekki lengi að komast í 1-0 þegar Fabio tók uppá sitt einsdæmi að bruna upp völlinn og skjóta af 40 metra færi sem endaði stönginn inn og mark umferðarinnar staðreynd. Var þá röðin kominn að fjölskylduföðurnum Fritzl að skora eftir skot fyrir utan teig. Hreint ótrúleg byrjun hjá Bumba, og var Galdur gríðalega æstur í að ganga í hóp markaskorara sem hann gerði með snyrtilegu skoti í fjærhornið eftir samspil við Fabio sem reyndar var staðsettur utan vallar.
En Fabio átti undraverðan leik því hann komst á blað á öllum vígstöðum, átti stoðsendingar, tæklingar og eitt mark. Hreint ótrúlegt að sjá eftir að mikill lægð hefur legið yfir faxinu í síðustu leikjum. Urban Assault skoruðu síðan mark þar sem Ljóðmóðirinn kom öllum vörnum við en nennti ekki að standa í því að verja það sem á vegi hans var. Alkinho sem var jafn lélegur frammi og hann var góður í vörn, hafði tekið með sér ríkan englending sem sagðist kunna fótbolta og tóku þeir vörnina að mikilli harðfylgni.
Fritzl var greinlega endanlega kominn útúr kjallarnum því hann bætti við sínu öðru marki eftir sendingu frá Skara. Urban Assault létu þetta ekki á sig fá og röðuðu inn 3 mörkum á undir 3 mínútum og staðan orði 4-4. Tók þá Kindin til sinna ráða sem hafði legið í ljósabekk á hliðalínunni allann fyrri hálfleikinn. Kom hann eldheitur inná og skoraði tvö falleg mörk eftir sendingu frá Galdri. Staðan 6-4 og nýtt markamet hjá FC Bumba staðreynd. Flautaði síðan lýsandi og vallarvörður leikinn af með sinni fallegu rödd.
Ótrúlegur leikur með frábærum úrslitum, en leiðinlegt atvik átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks þegar Norsarinn ætlaði að sýna eitt af sínum frægu trickum sem hann hafði innflutt frá Noregi. Vildi ekki betur en svo til að hann lendir illa og hinn frægi ökli FC Bumba var kominn aftur með hefndum. Bólgnaði fótur hans upp í fallegt páskaegg með dass af tussudufti inní. En menn samt í sigurvímu og var haldið beint á barinn þar sem sigrinum var fagnað gríðalega.
Út og Inn
Snigillinn(Speedo)


01 apr, 2010 klukkan 17:59
Frábær upphitun gamli! Alltaf gaman að lesa um snilli síns sjálfs. En þú gleymdir þó einu…
Maður leiksins : Fabio
Mark leiksin: Fabio
Stoðsending leiksins: Fabio
Varnartilþrif leiksins: Fabio
Markvarsla leiksins: Fabio
Tuðrustuldur leiksins: Fabio
Tilþrif leiksins: Fabio
Björsopi leiksins: Fabio
Brandari leiksins: Fabio
Fyriliði leiksins: Fabio
Arkitekt að sigri: Fabio
Faðir, sonur og heilagur andi: Fabio
01 apr, 2010 klukkan 19:36
Ég vil taka tad fram ad ég tók ekki fleilspor í tessu leik!!
02 apr, 2010 klukkan 18:30
Glæsilegt drengir !